Skattfrádráttur vegna gjafa/framlaga til almannaheillafélaga

Einstaklingur getur fengið skattfrádrátt (lækkun á tekjuskattsstofni) allt að 350.000 kr. á ári, vegna gjafa og framlaga til félaga sem skráð eru á almannaheillaskrá Skattsins.

Áritun á framtal

Móttakendur gjafa og framlaga, sem skráðir eru á almannaheillaskrá, þurfa að gefa út kvittun fyrir móttöku þar sem m.a. kemur fram nafn og kennitala gefanda og fjárhæð framlags. Að ári loknu þarf móttakandi að skila upplýsingum um móttekin framlög ársins til Skattsins og á grundvelli þeirra gagnaskila verður frádráttur áritaður á framtöl gefenda (reitur 155 í kafla 2.6 á tekjusíðu framtals).

Hámarks- og lágmarksfjárhæðir

Til þess að einstaklingur fái frádrátt þurfa gjafir/framlög hans á árinu að vera a.m.k. 10.000 kr. Hámarks frádráttur er 350.000 kr. Frádráttur þessi er ekki millifæranlegur hjá hjónum/sambúðarfólki.

Viðurkenndir móttakendur

Þeir lögaðilar, sem fengið geta skráningu á almannaheillaskrá, eru almennt óhagnaðardrifin félög sem stunda starfsemi með þjóðfélagslegan tilgang og samfélagsleg markmið að leiðarljósi.

Lögaðilar á almannaheillaskrá

Starfsemi sem telst til almannaheilla:

  • Mannúðar- og líknarstarfsemi
  • Æskulýðs- og menningarmálastarfsemi
  • Björgunarsveitir og slysavarnadeildir
  • Vísindaleg rannsóknarstarfsemi
  • Háskólasjóðir og aðrir menntasjóðir
  • Neytenda- og forvarnarstarfsemi
  • Þjóðkirkjan og önnur trú- og lífsskoðunarfélög
Sjá nánar um skilyrði og skilgreiningar.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum