Álagningarseðill og forsendur 2022

Á þessari síðu er að finna forsendur fyrir álagningu þeirra gjalda sem ríkisskattstjóri leggur á árið 2022, samkvæmt framtölum manna sem ekki stunda atvinnurekstur (vegna tekna 2021). Einnig forsendur fyrir ákvörðum barnabóta og vaxtabóta.

Í kaflanum Álagningarseðillinn eru skýrðar þær reglur sem gilda um uppgjör, skuldajöfnun, innheimtu og útborganir.

Forsendur fyrir álagningu tryggingagjalds, vegna eigin rekstrar, er að finna á sams konar síðu fyrir atvinnurekstur.

Forsendur álagningar

Tekjuskattsstofn

Tekjuskattsstofn er ákvarðaður samkvæmt framtali, þ.e. laun, bætur, lífeyrir, styrkir, hlunnindi og aðrar skattskyldar greiðslur, að teknu tilliti til frádráttar samkvæmt kafla 2.6 á framtali. Helstu frádráttarliðir eru iðgjald í lífeyrissjóð, frádráttur á móti dagpeningum og ökutækjastyrk og frádrættir á móti öðrum styrkjum. Einnig frádráttur vegna gjafa/framlaga til skráðra almannaheillafélaga eftir 1.11.2021. Ívilnun veitt af ríkisskattstjóra kemur einnig til lækkunar. Skattlagning tekna sem aflað er erlendis er mismunandi eftir löndum og ákvæðum tvísköttunarsamninga.

Útsvar er einnig lagt á tekjuskattsstofn.

Um skattskyldar tekjur einstaklinga er fjallað í 7. grein laga nr. 90/2003 og um frádrátt frá tekjum er fjallað í 30. grein sömu laga.

Tekjuskattur og útsvar

Tekjuskattur

Álagning og uppgjör tekjuskatts og útsvars fer framvegis fram í lok maí ár hvert. Tekjuskattur er á bilinu 17,0% - 31,8% af tekjuskattsstofni.

17,0% af stofni 0 - 4.188.211 kr.
23,50% af stofni 4.188.212 kr. - 11.758.159 kr.
31,8% af stofni yfir 11.758.159 kr.

Sé tekjuskattsstofn annars samskattaðs aðila hærri en 11.758.159 kr. skal það sem umfram er skattlagt með 23,50% skatthlutfalli (fer í milliþrep), allt að helmingi þeirrar fjárhæðar sem tekjuskattsstofn þess tekjulægri er undir 11.758.159 kr., þó reiknast 23,50% skatthlutfall aldrei af hærri fjárhæð en 3.784.974 kr. við þessar aðstæður.

Frá þannig reiknuðum tekjuskatti dregst persónuafsláttur.

Útsvar

Útsvar er reiknað af sama stofni og er hundraðshluti þess ákvarðaður af sveitarfélögum. Útsvarsstofn skiptist hlutfallslega eftir búsetu í hverju sveitarfélagi á árinu og ákvarðast útsvar í samræmi við það. Sundurliðaðar upplýsingar um skiptingu útsvars eftir sveitarfélögum er að finna á þjónustusíðunni á skattur.is. Meðalútsvar á tekjuárinu 2021 var 14,45%.

Ef persónuafsláttur gengur ekki allur til lækkunar tekjuskatts nýtist það sem umfram er til greiðslu útsvars.

Skatthlutfall barna

Af launatekjum barna, sem ekki hafa náð 16 ára aldri á tekjuárinu, er reiknaður 4% tekjuskattur og 2% útsvar af fjárhæð sem er umfram 180.000 kr. Börn eiga ekki rétt á persónuafslætti.

Dánarbú

Fyrir mann sem lést á tekjuárinu og lætur ekki eftir sig maka, er að jafnaði aðeins skilað hefðbundnu persónuframtali og reiknast þá persónuafsláttur til dánardags. Þó getur þurft að skila skattframtali dánarbús þegar tekjur falla til eftir andlátsdag, t.d. vegna rekstrar á kennitölu hins látna, eða ef dánarbúið á eignir (er óskipt) í árslok.

Ef skila þarf framtali á öðru ári eftir andlát er notað Skattframtal dánarbús, RSK 1.03. Álagning á dánarbúið fer þá eftir þeim reglum sem gilda um lögaðila og fer fram í lok október, um leið og lagt er á aðra lögaðila.

Fjármagnstekjuskattur

Stofn til skatts á fjármagnstekjur er vaxtatekjur, arður, leigutekjur og söluhagnaður, samkvæmt 3. kafla skattframtals. Lagður er 22% tekjuskattur á allar fjármagnstekjur ársins 2021. Í framtali 2021 bættist við nýr kafli á fjármagnstekjuhlið framtalsins, vegna höfundarréttargreiðslna til einstaklinga, en þær bera fjármagnstekjuskatt frá og með tekjuárinu 2020.

Frítekjumark vegna vaxtatekna, auk arðs og söluhagnaðar hlutabréfa á skipulegum verðbréfamarkaði er 300 þús. kr. hjá einstaklingi en 600 þús. kr. hjá samsköttuðum. Frádráttur vegna leigutekna af íbúðarhúsnæði er 50% af leigutekjum af útleigu íbúðarhúsnæðis til búsetu leigjanda og sem fellur undir húsaleigulög, enda séu hinar sérgreindu útleigðu íbúðir ekki fleiri en tvær. Beri maður leigukostnað vegna íbúðar til eigin nota á sama tíma og hann hefur leigutekjur af íbúðarhúsnæði í tímabundinni útleigu, má draga leigukostnað frá leigutekjum.

Hvorki útsvar né önnur gjöld eru lögð á fjármagnstekjur. Frá reiknuðum skatti á fjármagnstekjur dragast 22/37 af þeim persónuafslætti, sem ekki hefur verið nýttur með öðrum hætti.

Auðlegðarskattar

Auðlegðarskattur

Auðlegðarskattur er fallinn niður.

Viðbótarauðlegðarskattur

Viðbótarauðlegðarskattur er fallinn niður.

Önnur gjöld

Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra

Gjaldið er 12.334 kr. á hvern mann og lagt á þá sem eru með tekjustofn umfram 1.938.025 kr.

Tekjustofn er tekjuskattsstofn að viðbættum fjármagnstekjuskattsstofni. Hjá hjónum og samsköttuðu fólki bætist þó einungis helmingur sameiginlegs fjármagnstekjuskattsstofns við tekjustofn hjá hvoru fyrir sig.

Undanþegnir gjaldinu eru þeir sem eru 70 ára og eldri í árslok 2021, svo og elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Útvarpsgjald

Gjaldið er 18.800 kr. á hvern mann og lagt á þá sem eru með tekjustofn umfram 1.938.025 kr.

Tekjustofn er tekjuskattsstofn að viðbættum fjármagnstekjuskattsstofni. Hjá hjónum og samsköttuðu fólki bætist þó einungis helmingur sameiginlegs fjármagnstekjuskattsstofns við tekjustofn hjá hvoru fyrir sig.

Undanþegnir gjaldinu eru þeir sem eru 70 ára og eldri í árslok 2021, svo og elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Slysatrygging við heimilisstörf

Iðgjald vegna slysatryggingar við heimilisstörf er 550 kr. og er lagt á þá sem óska eftir slysatryggingu.
Sá sem fyllir út viðeigandi reit á skattframtali í byrjun árs telst slysatryggður við heimilisstörf frá 1. júní það ár til 31. maí árið eftir, enda hafi skattframtalinu verið skilað til skattyfirvalda innan lögbundins frests.
Sjá nánar um trygginguna á vef Sjúkratrygginga Íslands .

 

Skattafsláttur

Persónuafsláttur

Persónuafsláttur tekjuársins 2021 í álagningu 2022 er 609.509 kr.

Persónuafsláttur er fyrst dreginn frá reiknuðum tekjuskatti. Óráðstafaður persónuafsláttur gengur síðan til greiðslu á útsvari. Þegar um samskattaða einstaklinga er að ræða er þeim hluta persónuafsláttarins, sem enn er óráðstafað, bætt við persónuafslátt maka. Af því sem þá kann að vera óráðstafað ganga 22/37 til greiðslu skatts á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

Sérstakur persónuafsláttur vegna "Leiðréttingarinnar"

Ef leiðrétting höfuðstóls, skv. lögum nr. 35/2014, gekk ekki inn á fasteignaveðlán, myndaði hún sérstakan persónuafslátt. Það gerðist ef umsækjandi var ekki lengur með fasteignaveðlán eða ef ákvörðuð leiðrétting var lægri en 200.000 krónur.

Þessi persónuafsláttur skiptist á fjögur ár og nýttist við álagningu opinberra gjalda á árunum 2015 til 2018. Honum var bætt við almennan persónuafslátt og var nýttur á móti álögðum tekjuskatti, útsvari og fjármagnstekjuskatti. Sérstakur persónuafsláttur var millifæranlegur á milli samskattaðra hjóna og sambúðarfólks á álagningarári í samræmi við almennar reglur um millifærslu persónuafsláttar.

Nýttist sérstakur persónuafsláttur ekki á álagningarári yfirfærðist það sem ónýtt var til næsta árs/ára, allt þar til ráðstöfunartímabilinu lauk árið 2018. Afsláttur sem þá stóð eftir ónýttur, féll niður.

Sérstakur frádráttur vegna hlutabréfakaupa

Vegna fjárfestingar einstaklings (að lágmarki 300.000 kr.) í hlutafjáraukningu félaga sem uppfylla ákveðin (ströng) skilyrði. 75% frádráttur frá tekjuskattsstofni að viðbættum fjármagnstekjum vegna fjárfestingar allt að 15.000.000 kr. Gildir tekjuárin 2016, 2017, 2018, 2019, 2020, 2021, 2022, 2023 og 2024 (álagning 2017, 2018, 2019, 2020, 2021, 2022, 2023, 2024 og 2025). Ónýtt frádráttarheimild er millifæranleg í allt að þrjú ár. Áður fenginn frádráttur fellur niður (tekjufærist með 15% álagi) ef bréfin eru seld innan þriggja ára.

Sjómannaafsláttur

Sjómannaafsláttur er fallinn niður og reiknast því enginn sjómannaafsláttur við álagningu 2022.

Vaxtabætur

Þeir sem greiða vaxtagjöld af lánum, sem tekin hafa verið vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota, eiga rétt á vaxtabótum. Hér er um að ræða lán sem fram koma í kafla 5.1 eða 5.2 á framtali.

Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta er sú fjárhæð sem lægst er af a), b) og c):

a. Vaxtagjöld samkvæmt reit um 87 og/eða 166 á framtali.
b. 7% af eftirstöðvum skulda samkvæmt reit um 41, 45 eða 167 á framtali.
c. Hámark vaxtagjalda. Hjá einhleypingi er það 840.000 kr., hjá einstæðu foreldri 1.050.000 kr. og hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist 1.260.000 kr.

Frá vaxtagjöldum samkvæmt framansögðu eru dregin 8,5% af tekjum. Hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist er miðað við samanlagðar tekjur beggja. Mismunurinn er vaxtabætur sem eru skertar hlutfallslega fari eignir að frádregnum skuldum fram úr:

  • 5.000.000 kr. hjá einhleypingi eða einstæðu foreldri uns þær falla niður við 60% hærri mörk eða 8.000.000 kr.
  • 8.000.000 kr. hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist uns þær falla niður við 60% hærri mörk eða 12.800.000 kr.

Hámark vaxtabóta fyrir einhleyping er 420.000 kr., fyrir einstætt foreldri 525.000 kr. og fyrir hjón, sambúðarfólk eða par í staðfestri samvist 630.000 kr.

Vaxtabætur sem eru lægri en 5.000 kr. á mann falla niður.

Fyrirfram ákvarðaðar vaxtabætur

Endanleg fjárhæð vaxtabóta er byggð á framtali og ákvörðuð við álagningu. Á innheimtuseðli hafa fyrirfram ákvarðaðar vaxtabætur verið dregnar frá endanlegri fjárhæð.

Fyrirfram ákvarðaðar vaxtabætur vegna vaxtagjalda á árinu 2022 koma ekki fram á álagningarseðli 2022.

Barnabætur

Barnabætur eru greiddar framfærendum barna innan 18 ára aldurs, sem heimilisföst eru hér á landi. Þær eru greiddar í fyrsta sinn árið eftir að barn fæðist og í síðasta sinn árið sem 18 ára aldri er náð.

Fjárhæðir barnabóta eru sem hér segir:

Hjón og sambúðarfólk:

Með fyrsta barni 248.000 kr.
Með hverju barni umfram eitt 295.000 kr.

Einstæðir foreldrar:

Með fyrsta barni 413.000 kr.
Með hverju barni umfram eitt 423.000 kr.

 

Barnabætur eru skertar með hliðsjón af tekjum framteljanda. Af tekjuskattsstofni umfram 9.098.000 kr. og að 12.320.000 kr. hjá hjónum/sambýlisfólki og umfram 4.549.000 kr. og að 6.160.000 kr. hjá einstæðu foreldri er skerðingarhlutfallið 4% með einu barni, 6% með tveimur börnum og 8% með þremur börnum eða fleiri.
Af tekjuskattsstofni umfram 12.320.000 kr. hjá hjónum/sambýlisfólki og 6.160.000 kr. hjá einstæðu foreldri er skerðingarhlutfallið 5,5% með einu barni, 7,5% með tveimur börnum og 9,5% með þremur börnum eða fleiri.

 

Viðbót vegna barna yngri en 7 ára

Með hverju barni yngra en 7 ára eru að auki greiddar 148.000 kr. Skerðingarhlutfall vegna viðbótarinnar eru 4% með hverju barni af tekjuskattsstofni umfram 9.098.000 kr. hjá hjónum/sambýlisfólki og umfram 4.549.000 kr. hjá einstæðu foreldri.

 

Barnabótum er aðeins skuldajafnað á móti ofgreiddum barnabótum.

Barnabætur sem eru lægri en 5.000 kr. á hvern framfæranda falla niður.

Fyrirfram ákvarðaðar barnabætur

Endanleg fjárhæð barnabóta er byggð á framtali og ákvörðuð við álagningu. Á innheimtuseðli hafa fyrirfram ákvarðaðar barnabætur verið dregnar frá endanlegri fjárhæð.

Barnabótaauki 2022

Greiddur er sérstakur barnabótaauki þann 1. júlí 2022, til þess að draga úr áhrifum verðbólgu.

Greiddar eru 20.000 kr. með hverju barni í þeim tilvikum þar sem ákvarðaðar eru tekjutengdar barnabætur til framfærenda í álagningu.

Álagningarseðillinn

Rafræna yfirlitið sem gjaldendur fá að lokinni álagningu er ekki lengur tvískipt í álagningarseðil og innheimtuseðil, eins og áður var. Nú kemur heildarniðurstaða álagningar fram í einni mynd og hægt er að skoða hvernig einstakar fjárhæðir í álagningunni eru reiknaðar út. Tekið skal fram að inneign er sýnd með grænum lit sem plústala og skuld með rauðum lit sem mínustala í þessu rafræna yfirliti.

Staðgreiðsluyfirlit

Í yfirlitinu eru birtar upplýsingar um innborgaða staðgreiðslu, sundurliðað eftir launagreiðendum. Ef upplýsingum ber ekki saman við launaseðla er launamönnum bent á að snúa sér til launagreiðanda varðandi leiðréttingu. Sé afdregin staðgreiðsla ekki leiðrétt þannig, geta menn snúið sér til Skattsins með umsókn um leiðréttingu. Afrit af launaseðlum þurfa að fylgja slíkri umsókn.

Gjöld í staðgreiðslu

Staðgreiðsla er bráðabirgðagreiðsla opinberra gjalda á tekjuári. Við uppgjör staðgreiðslu á móti álögðum tekjuskatti og útsvari getur komið fram mismunur, þ. e. inneign eða skuld. Sama gildir um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur og staðgreiðslu tryggingagjalds og fjársýsluskatts.

Af launum og öðrum staðgreiðsluskyldum tekjum var á árinu 2021 reiknuð 31,45%, 37,95% og 46,25% staðgreiðsla, sem fer eftir því í hvaða tekjuskattsþrepi tekjurnar lenda, en útsvar í staðgreiðslu var miðað við landsmeðaltal (14,45%). Í álagningu er útsvar mismunandi eftir sveitarfélögum.

Af arði og staðgreiðsluskyldum vaxtatekjum var reiknuð 22% staðgreiðsla vegna skatts á fjármagnstekjur 2021.

Það sem myndar inneign

Þegar gjaldandi á inneign til útborgunar, eftir álagningu, stafar það oftast af ákvörðun vaxtabóta og barnabóta. Inneign getur einnig myndast vegna ofgreiddrar staðgreiðslu. Það sem helst getur orsakað það er:

  • Persónuafsláttur hefur ekki verið nýttur við staðgreiðslu.
  • Ríkisskattstjóri hefur veitt ívilnun til lækkunar á tekjuskattsstofni.
  • Staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts sem greidd hefur verið af vaxtatekjum undir frítekjumarki vaxtatekna.
  • Frádráttur er færður á skattframtal vegna ökutækjastyrks og dagpeninga sem staðgreiðsla hefur verið greidd af.
  • Iðgjöld vegna viðbótar lífeyrissparnaðar hafa ekki verið dregin frá stofni til útreiknings staðgreiðslu, en koma til frádráttar við álagningu.
  • Útsvar í sveitarfélagi framteljanda er lægra en landsmeðaltal (14,45%).
  • Ofgreitt tryggingagjald eða fjársýsluskattur.

Það sem myndar skuld

Þegar gjaldandi stendur í skuld, eftir álagningu, eru það einkum 4 þættir sem skýra skuldina.

Í fyrsta lagi stafar hún af gjöldum sem lögð eru á hann og standa utan við staðgreiðslukerfið. Gjöldin eru þessi:

  • Útvarpsgjald.
  • Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra.
  • Slysatrygging vegna heimilisstarfa.
  • Tryggingagjald og fjársýsluskattur utan staðgreiðslu.

Í öðru lagi getur skuld myndast ef fyrirfram ákvarðaðar barnabætur eða vaxtabætur reynast hærri en endanlega ákvarðaðar bætur.

Í þriðja lagi getur skuld myndast þegar afdregin staðgreiðsla er lægri en endanleg álögð gjöld, en það gerist í neðangreindum tilvikum:

  • Útsvar í sveitarfélagi framteljanda er hærra en landsmeðaltal (14,45%).
  • Persónuafsláttur hefur verið ofnýttur við staðgreiðslu.
  • Launagreiðandi hefur ekki staðið skil á afdreginni staðgreiðslu.
  • Fjármagnstekjuskatti hefur ekki verið skilað af öllum arði og vaxtatekjum.
  • Tryggingagjald eða fjársýsluskattur hefur verið vanreiknað í staðgreiðslu.

Í fjórða lagi getur skuld myndast vegna skattskyldra tekna, sem ekki var skylt að skila staðgreiðslu af, sem t.d. eru:

  • Leigutekjur.
  • Söluhagnaður.
  • Hagnaðar af eigin atvinnurekstri.

Skuldajöfnuður – ráðstöfun inneigna

Mismunandi reglur gilda um ráðstöfun inneigna á móti skuldum, eftir því hvort um er að ræða skatta eða bætur.

Ráðstöfun staðgreiðslu og ofgreiddrar fyrirframgreiðslu

Hjá hjónum og samsköttuðu sambúðarfólki er ofgreiddri staðgreiðslu fyrst ráðstafað til greiðslu á ógreiddu útsvari og tekjuskatti maka vegna álagningarársins.

Síðan er ofgreiddri staðgreiðslu ráðstafað til greiðslu á:

  • Eldri þing- og sveitarsjóðsgjöldum.
  • Álögðum gjöldum ársins sem gjaldfalla 1. júní eða fyrr.
  • Eftirstöðvum tryggingagjalds og vanskilum á staðgreiðslu.
  • Eldri þing- og sveitarsjóðsgjöldum maka.
  • Öðrum gjaldföllnum sköttum og gjöldum.

Ofgreiddri staðgreiðslu er ráðstafað upp í ofgreiddar greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði og ofgreiddar húsaleigubætur frá sveitarfélögum.

Ráðstöfun barnabóta og vaxtabóta

Frá vaxtabótum og barnabótum eru dregnar fyrirfram ákvarðaðar vaxtabætur og barnabætur. Barnabótum, sem þá standa eftir, er ráðstafað á móti ofgreiddum barnabótum og skipt á tvo gjalddaga, 1. júní og 1. október. Vaxtabætur koma til útborgunar 1. júní. Vaxtabótum sem koma til útborgunar 1. júní er ráðstafað til greiðslu á:

  • Eldri þing- og sveitarsjóðsgjöldum.
  • Álögðum gjöldum ársins sem gjaldfalla 1. júní eða fyrr.
  • Eftirstöðvum tryggingagjalds.
  • Kröfum að utan.
  • Vangreiddum þing- og sveitarsjóðsgjöldum maka.
  • Virðisaukaskatti og bifreiðagjöldum.
  • Ofgreiddum greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og Atvinnuleysistryggingasjóði.
  • Ofgreiddum húsaleigubótum frá sveitarfélögum.
  • Vangreiddum meðlögum hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga.

Inneignarvextir, álag og dráttarvextir

Á mismun staðgreiðslu og álagningar er reiknað 2,5% álag. Gildir það bæði um inneignir vegna ofgreiddrar staðgreiðslu og um skuldir vegna ógreidds tekjuskatts, útsvars og skatts á fjármagnstekjur.

Á mismun (skuld) staðgreiðslu og álagningar tryggingagjalds og fjársýsluskatts reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, sé greitt eftir eindaga hvers tímabils.

Á ofgreidda staðgreiðslu tryggingagjalds og fjársýsluskatts eru reiknaðir inneignarvextir.

Inneign, gjalddagar, kærufrestur

Skatturinn veitir nánari upplýsingar um álagningu opinberra gjalda og staðgreiðsluskil.

Innheimtumenn ríkissjóðs, sýslumenn utan Reykjavíkur og Skatturinn, veita nánari upplýsingar um greiðslustöðu, útborgun inneigna og innheimtu skulda.

Inneign 1. júní

Inneign er ekki send í ávísun. Lagt er inn á bankareikning gjaldanda ef upplýsingar um reikning eru fyrir hendi hjá skattyfirvöldum, innheimtumanni, ráðstöfunarskrá banka og sparisjóða eða launaskrá Fjársýslu ríkisins. Upplýsingar um greiðslu inneigna koma fram á innheimtuseðli.

Inneign sem myndast að loknum skuldajöfnuði er greidd þannig:

  • Barnabætur eru greiddar út 1. júní og 1. október.
  • Aðrar inneignir eru greiddar út 1. júní.

Inneign 1. júní er greidd út þrátt fyrir ógreidda álagningu ársins sem gjaldfellur 1. júlí og síðar.

Gjalddagar eftirstöðva

Eftirstöðvum álagðra gjalda er jafnað á sjö gjalddaga, 1. júní - 1. desember. Þó er útvarpsgjaldi jafnað á þrjá gjalddaga, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst. Gjalddagaskipting miðast þó við að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 5.000 kr. á hverjum gjalddaga. Við skil á skattframtali 2022 og síðar getur framteljandi þó óskað eftir því að gera upp alla álagninguna þann 1. júní, í stað þess að dreifa greiðslum á 3-7 gjalddaga.

Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa og ofgreiddar barnabætur, vaxtabætur og tryggingagjald/fjársýsluskattur utan staðgreiðslu gjaldfalla 1. júní.

Vangreiðsla á hluta gjalda veldur því að öll gjöld á gjaldárinu falla í eindaga mánuði eftir gjalddagann, þó ekki fyrr en mánuði eftir að álagningu er lokið.

Ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi manna, sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur, er fallinn í gjalddaga fyrir 1. júní. Sama gildir um ógreitt en staðgreiðsluskylt tryggingagjald/fjársýsluskatt.

Innborgun gengur fyrst til lækkunar á elstu skuld.

Skyldur launagreiðanda

Launagreiðanda ber að halda eftir af launum starfsmanns fjárhæð, sem nægir til greiðslu opinberra gjalda hans, þó aldrei hærri fjárhæð að meðtalinni staðgreiðslu en sem nemur 75% af heildarlaunagreiðslu hverju sinni. Ágreining um afdrátt af launum má bera undir viðkomandi innheimtumann ríkissjóðs. Ákvörðun hans er kæranleg til fjármálaráðuneytis.

Greiðsluseðlar

Ef fjárhæð (skuld) á gjalddaga er 5.000 kr. eða hærri eru greiðsluseðlar sendir gjaldendum vegna hvers gjalddaga 1. júní - 1. desember. Greiðsluseðlar eru sendir til þeirra gjaldenda sem ekki eru merktir ákveðnum launagreiðendum hjá innheimtumönnum ríkissjóðs.

Kærufrestur

Frestur til að kæra álagningu opinberra gjalda, þ.m.t. tryggingagjalds, eru þrír mánuðir talið frá dagsetningu auglýsingar ríkisskattstjóra um að álagningu sé lokið. Kærufresti lýkur þann 31. ágúst 2022. Unnt er að senda kæru rafrænt á þjónustusíðu, skattur.is.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum