Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa
Innflytjendur verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa eða framleiðendur íbúðarhúsa í verksmiðju hér á landi eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts, sem nemur ákveðnu hlutfalli af heildarsöluverði hvers húss, allt eftir því á hvaða stigi húsið er afhent, að meðtöldum 24% virðisaukaskatti.
Innflytjandi íbúðarhúsanna á rétt á endurgreiðslu, en ekki kaupendur þeirra.
Lóðareigandi getur sótt um endurgreiðslu vegna vinnu á grunni og plötu slíkra húsa.
Nánari upplýsingar um endurgreiðslu VSK vegna íbúðarhúsnæðis
Sótt er um endurgreiðslur á eyðublaði RSK 10.16 og skal þeirri umsókn skilað með tölvupósti á tölvupóstfangið skatturinn@skatturinn.is.
Endurgreiðslutímabil og afgreiðsla umsókna
Hvert endurgreiðslutímabil er tveir mánuðir: janúar og febrúar, mars og apríl, og svo framvegis. Endurgreiðslutímabil þeirra byggingaraðila sem gera upp virðisaukaskatt einu sinni á ári (ársskil) er þó almanaksárið. Umsókn skal berast ríkisskattstjóra í síðasta lagi 15. dag næsta mánaðar eftir að endurgreiðslutímabili lýkur, sjá töflu:
Tímabil | tb. | Skiladagur umsóknar og gagna | Afgreiðslutími |
---|---|---|---|
janúar- febrúar | 8 | 15. mars | 5. apríl |
mars -apríl | 16 | 15. maí | 5. júní |
maí -júní | 24 | 15. júlí | 5. ágúst |
júlí - ágúst | 32 | 15. september | 5. október |
september - október | 40 | 15. nóvember | 5. desember |
nóvember - desember | 48 | 15. janúar | 5. febrúar |
Almanaksárið | 48 | 15. janúar | 5. febrúar, árið eftir |
Umsóknir sem berast eftir lok skilafrests eru afgreiddar með umsóknum næsta endurgreiðslutímabils.
Réttur til endurgreiðslu fellur niður ef beiðni um endurgreiðslu berst ríkisskattstjóra eftir að sex ár eru liðin frá því að réttur til endurgreiðslu stofnaðist.
Gögn með umsókn
Meðfylgjandi beiðni um endurgreiðslu skal vera:
- hreyfingalisti yfir seld hús eða húseiningar
- reikningar sem lagðir eru til grundvallar endurgreiðslu
- yfirlit yfir eign(ir) sem beiðni varðar.
Fylgi beiðni önnur fylgiskjöl skal gerð grein fyrir þeim í viðeigandi reit.
Varði umsókn fleiri en eina eign skal sundurliðun yfir staðsetningu og fastanúmer eigna fylgja umsókninni sem viðhengi.
Leiðbeiningar með umsókn
Tímabil framkvæmda
Greinargerð um fjölda seldra íbúðarhúsa og söluverð þeirra
Ítarefni
Hvar finn ég reglurnar?
Verksmiðjuframleitt íbúðarhúsnæði, endurgreiðslur – 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt
Undanþegin starfsemi – 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt
Innskattur – 15. og 16. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt
Reglugerð nr. 449/1990 - Reglugerð nr. 449/1990