Common Reporting Standard (CRS)

CRS er samræmdur staðall um upplýsingaskipti á fjárhagsupplýsingum. Markmiðið með staðlinum er að koma í veg fyrir skattundanskot. Þeir sem eru upplýsingaskyldir samkvæmt staðlinum munu frá og með 1. janúar 2016 þurfa að auðkenna og aðgreina reikningshafa og raunverulega eigendur sem skattskyldir eru í erlendum ríkjum fyrir utan Bandaríki Norður Ameríku. Fyrstu skil til ríkisskattstjóra samkvæmt staðlinum fóru fram á árinu 2017 vegna tekjuársins 2016.

Með lögum nr. 124/2015 var 92. gr. laga nr. 90/2003 breytt á þann veg að upplýsingaöflun ríkisskattstjóra nái einnig til þess að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar um upplýsingaskipti á sviði skattamála.

Staðallinn var innleiddur með reglugerð nr. 1240/2015 um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála.


Reglur

Frá og með 1. janúar 2016 munu nýjar reglur gilda á Íslandi þar sem samræmdur staðall um upplýsingaskipti á fjárhagsupplýsingum verður innleiddur.

Lesa meira

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum