Stafrænt pósthólf
Frá og með 1. janúar 2025 birtast bréf frá Skattinum í Stafræna pósthólfinu á Ísland.is. Þetta gildir um einstaklinga og lögaðila sem eru með útgefna kennitölu. Aðgangur að bréfum og tilkynningum frá Skattinum verður eftir sem áður til staðar á þjónustusíðu Skattsins. Breytingin er liður í innleiðingu laga um Stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Markmiðið er að bæta þjónustu og auka öryggi við sendingu gagna.
Skatturinn birtir eftirfarandi gögn í stafrænu pósthólfi:
- Beiðni um gögn
- Fyrirhugaðar ákvarðanir
- Ákvarðanir
- Úrskurðir
- Endurákvarðanir
- Vottorð
- Leyfi
- Rökstuðningur
- Beiðni um frest
- Ítrekun á gagnabeiðni
Bréf til umboðsmanna sem eru send fyrir hönd þeirra skjólstæðinga birtast ekki í Stafrænu pósthólfi umboðsmanna. Sama gildir um fyrirspurnir til lögaðila um upplýsingaskyldu gagnvart þriðja aðila.
Hnipp og tilkynningar um ný bréf
Á Mínum síðum Ísland.is er hægt að skrá netfang og fá hnipp þegar bréf er birt í pósthólfinu.
Á sama stað er hægt að óska eftir að fá öll bréf send á pappírsformi á lögheimili samhliða birtingu í stafrænu pósthólfi. Hægt er að sækja um sömu þjónustu með því að mæta á skrifstofu sýslumanna og framvísa skilríkjum. Réttaráhrif bréfa sem send eru í pósti miðast samt sem áður við tíma birtingar í stafrænu pósthólfi.
Skoða hnipp stillingar á Mínum síðum Ísland.is
Samskipti sem birtast með öðrum hætti en í Stafrænu pósthólfi
Þrátt fyrir að nær öll samskipti birtist í Stafrænu pósthólfi á Ísland.is eru þó samskipti sem ekki munu rata í þann farveg heldur birtast með eftirfarandi hætti:
Þjónustuvefur
- Móttökukvittanir
- Samskipti vegna umsókna um ráðstöfun séreignarsparnaðar vegna fyrstu íbúðar
- Samskipti vegna umsókna um ráðstöfun séreignarsparnaðar vegna Leiðréttingarinnar
Tölvupóstur og símtöl
- Áminningar um gjalddaga eða fresti eða annarskonar áminningar um gagnaskil
- Svör við einföldum fyrirspurnum
Tollalínan eða hugbúnaðar innflytjenda eða tollmiðlara
- Álagning gjalda í innflutningi
- Tilkynning um afhendingu vöru (afhendingarheimild)
- Beiðni um gögn við inn- eða útflutning vöru
- Löndunarvottorð
Farmverndarkerfi
- Farmverndaryfirlýsing
Pappírsafgreiðsla eða bréfapóstur
- Upprunavottorð og ATA Carnet
- Höfnun tollverðs í daglegum rekstri póst- og hraðsendinga (ef þetta fer í kæruferli eru bréf birt í Stafrænu pósthólfi)
- Beiðni um skoðun á vöru sem senda á til útlanda
Leiðrétting.is
- Samskipti vegna umsókna um ráðstöfun séreignarsparnaðar á leiðrétting.is