Barnabætur á fæðingarári

Reiknivél barnabóta

Á árinu 2025 eru foreldrum í fyrsta sinn greiddar barnabætur á fæðingarári barnsins. Fjárhæðin sem greidd er á fæðingarári kemur til lækkunar þeirra barnabóta sem greiddar verða í febrúar og maí árið eftir.

Barnabætur á fæðingarári eru greiddar út sjálfkrafa til foreldra. Ekki þarf að sækja um.

Foreldrar barna sem flytja til landsins fá einnig greiddar barnabætur sjálfkrafa á flutningsári eftir sömu reglum.

Flytji barn úr landi á árinu fellur greiðslan niður þann ársfjórðung.

Barnabætur á fæðingarári

  • Fara eftir sömu reglum um tekjuskerðingu og almennar barnabætur.
  • Skiptast jafnt á milli hjóna og fólks í sambúð. Hjúskaparstaða miðast við skráningu í þjóðskrá þann ársfjórðunginn.
  • Eru jafn háar hjá hjónum, fólki í sambúð og hjá einstæðum foreldrum.

Barnabætur á fæðingarári eru greiddar út þrisvar sinnum yfir árið:

  • 1. maí - börn fædd í janúar – mars
  • 1. ágúst – börn fædd apríl – júní (og fyrr á árinu)
  • 1. nóvember – börn fædd júlí – september (og fyrr á árinu)

Fjárhæð hverrar greiðslu er 12% af fyrirframgreiðslu barnabóta miðað við hjón og samskattaða aðila að teknu tilliti til skerðinga.

Fjárhæðin sem greidd er á fæðingarári er dregin af barnabótum sem annars kæmu 1. febrúar og 1. maí árið eftir.

Tökum dæmi:

 Barn fæðist í febrúar

Barn fæðist í febrúar. Foreldrar munu fá greiddar barnabætur í maí, ágúst og nóvember, samtals 36% þeirrar fjárhæðar sem þeim hefði verið greiddar í febrúar og maí árið eftir. 

Þegar fyrirframgreiðsla barnabóta er reiknuð fyrir febrúar og maí árið eftir er fyrirframgreiðslan vegna barnabóta á fæðingarári barns dregin frá og eftirstöðvum skipt á tvær greiðslur, 1. febrúar og 1. maí.

Barn flytur til landsins

Flytji barn með foreldrum sínum til landsins innan ársins fá foreldrar barnsins greiddar barnabætur frá og með næsta ársfjórðungi eftir að barn flytur til landsins. Hver greiðsla er 12% þeirrar fjárhæðar sem vænta má að þeim yrði greidd í febrúar og maí árið eftir.

Foreldrar barnsins þurfa í byrjun árs að sækja um fyrirframgreiðslu barnabóta á eyðublaði RSK 3.18 jafnvel þó þeim hafi verið greiddar barnabætur sjálfkrafa árið á undan. 

Ekki hægt að afþakka

Barnabætur á fæðingarári barns sem greiddar eru 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember er ekki hægt að afþakka, jafnvel þó að fyrirséð sé að greiða þurfi barnabæturnar til baka. 

Barnabætur á fæðingarári hærri en áætluð fyrirframgreiðsla

Þegar fyrirframgreiðsla barnabóta er reiknuð fyrir febrúar og maí árið eftir er fyrirframgreiðslan vegna barnabóta á fæðingarári barns dregin frá og eftirstöðvum skipt á tvær greiðslur, 1. febrúar og 1. maí.

Komi í ljós að barnabætur á fæðingarári hafi verið hærri myndast skuld sem þarf að greiða til baka í álagningu þann 1. júní. 

Ítarefni

Meira um barnabætur

Almennar reglur um barnabætur og fjárhæðir

EES Barnabætur

Hvar finn ég reglurnar

Almennt um barnabætur – A-liður 68. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt

Greiðsla barnabóta – reglugerð nr. 1400/2024 um greiðslu barnabóta


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum