Nýting séreignarsparnaðar
Heimilt er að taka út séreignarsparnað skattfrjálst vegna kaupa á íbúð til eigin nota. Fyrirkomulag úttektar getur verið tvenns konar. Annars vegar má sækja um að greiða viðbótariðgjald mánaðarlega inn á lánið eða hins vegar taka út uppsafnaðan séreignarsparnað við kaup á fasteign.
Tvö úrræði eru í boði, annað er tímabundið og opið fyrir alla fasteignaeigendur, hitt er fyrir kaupendur fyrstu íbúðar.