Umboðsmaður Alþingis
Umboðsmaður Alþingis er kosinn af Alþingi til að hafa sjálfstætt eftirlit með stjórnsýslu landsins. Hann gætir þess að stjórnvöld virði rétt borgara landsins með frumkvæðisathugunum. Borgarar geta kvartað yfir meðferð stjórnvalda við umboðsmann eftir að hafa tæmt allar kæruleiðir innan stjórnsýslunnar. Kvörtun verður að bera upp við umboðsmanns Alþingis innan árs frá því að endanleg ákvörðun stjórnsýslunnar liggur fyrir.
Álit umboðsmanns Alþingis er hægt að skoða á vef embættisins.