Áhafnir

Þeir sem eru í áhöfn aðkomufars skulu gera grein fyrir varningi á sérstöku eyðublaði, hvort sem flytja á hann í land eða nota hann um borð í fari, og jafnframt framvísa vörum sem eru háðar innflutningstakmörkunum eða innflutningsbanni.

Tollgæslu er heimilt að taka farangur farþega og áhafnar í sínar vörslur til skoðunar síðar ef þurfa þykir. Getur eigandi krafist þess að farangurinn verði innsiglaður þar til skoðun fer fram þar sem hann á rétt á að vera viðstaddur skoðunina. Enn fremur skal tollgæsla gefa út fullnægjandi kvittun ef hann óskar þess.

Verslun / Tollfríðindi

Varningur sem skipverjar og flugverjar (farmenn), búsettir hér á landi, hafa meðferðis hingað til lands eða kaupa í tollfrjálsri verslun að verðmæti:

  • Allt að 32.500 kr., miðað við smásöluverð á innkaupsstað, hafi þeir verið skemur en 15 daga í ferð,
  • Allt að 65.000 kr., hafi þeir verið lengur í ferð.
  • Verðmæti einstaks hlutar skal þó að hámarki vera 32.500 kr.

Tollfrelsi matvara, þ.m.t. sælgæti, er takmarkað við 25.000 kr. verðmæti og 10 kg (kílógrömm) að þyngd. Verðmæti tollfrjálsra matvæla fellur undir verðmætamörkin og kemur þar af leiðandi til frádráttar frá tollfrjálsri heimild annarrar verslunar.

Skipverjum og flugverjum, búsettum erlendis, er heimilt að flytja inn tollfrjálst ferðabúnað og annan farangur sem er hæfilegur miðað við tilgang ferðar og dvalartíma viðkomandi hér á landi, enda verði hann fluttur úr landi á ný við brottför eiganda.

Skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila

Skipverjum er heimilt að taka 11 einingar af áfengi eins og skilgreint er hér neðar á síðunni hafi skipverji verið 15 daga eða lengur í ferð. Hafi ferðin verið skemur en 15 dagar er skipverjum heimilt að taka 6 einingar.

Skipstjóra, yfirstýrimanni, yfirvélstjóra og bryta, svo og matsveinum á farþega- og vöruflutningaskipum, er jafnframt heimilt að taka gjaldfrjálst aukalega til risnu um borð jafnstóran skammt og þeir mega hafa gjaldfrjálst samkvæmt þessum lið. 

Flugverjar, þ.m.t. flugverjar í aukaá­höfn

Flugverjum sem hafa verið 15 daga eða lengur í ferð er heimilt að taka 5 einingar skv. ofangreindum viðmiðum. Hafi ferðin varað skemur en 15 daga er þeim heimilt að taka  3 einingar.

Nýtingu á tollfrelsi fyrir áhafnir flugvéla (ferð styttri en 15 dagar)

Farið inn á rautthlid.is og fylgið þeim skrefum sem þar eru með notkun rafrænna skilríkja. Undir -áhafnir flugvéla- er hægt að setja inn upplýsingar um hvort nýta eigi tollfrelsi í næstu ferð (72 tíma reglan). Textinn er bæði á ensku og íslensku.

Hægt er að hætta við færslu ef tíminn á komu flugvélar er ekki liðinn. Ef hætt er við verslun í fríhöfn eftir rafræn skil er hægt að koma við á rauðu hliði og breyta skráningu.

Þeir sem ekki eru með rafræn skilríki geta áfram notað eyðublað RSK 23.03.

Taflan sýnir lítrafjölda og einingar eftir tegundum áfengis

Dæmi: Skipverji sem verið hefur lengur en 15 daga í ferð gæti tekið 33 lítra af bjór sem jafngildir 11 einingum en þá getur hann ekki komið með annað áfengi tollfrjálst. Sami skipverji gæti valið að koma frekar með 1 líter af sterku (4 einingar), 0,75 lítra af léttvíni (1 eining) og 18 lítra af bjór (6 einingar) 4+1+6=11 einingar.    Blanda má saman tegundum að vild en aldrei koma með meira magn en einingarnar sem viðkomandi á rétt á samkvæmt lögunum segja til um.  

Einingafjöldi 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
Sterkt 0,25 0,5 0,75 1 1,25 1,5 1,75 2 2,25 2,5 2,75
Létt 0,75 1,5 2,25 3 3,75 4,5 5,25 6 6,75 7,5 8,25
Bjór 3 6 9 12 15 18 21 24 27 30 33
Gosvín undir 6% 3 6 9 12 15 18 21 24 27 30 33

Með einingu er átt við:

  1. Hverja 0,25 lítra af sterku áfengi, þ.e. áfengi sem í er meira en 21% af vínanda af rúmmáli.
  2. Hverja 0,75 lítra af léttvíni, þ.e. áfengi annað en öl sem í er 21% eða minna af vínanda að rúmmáli. 
  3. Hverja 3 lítra af öli sbr. 1. tölul. 1. mgr. 3. gr.
  4. Hverja 3 lítra af gosvíni, gerjaðri drykkjarvöru eða blöndu gerjaðra drykkjarvara og óáfengra drykkja sem flokkast undir vöruliði 2208 og 2206 enda sé varan að hámarki 6% að styrkleika. 

  Sjá: Lög um gjald á áfengi og tóbak, nr. 96/1995 með síðari breytingum.

 

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Lög um gjald á áfengi og tóbak, nr. 96/1995

Sjá nánar í Reglugerð nr. 630/2008 um ýmis tollfríðindiTollalögum og Lög um gjald af áfengi og tóbaki nr. 96/1995

 

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum