Kílómetragjald á rafmagnsbíla, vetnisbíla og tengiltvinnbíla

Greiða þarf kílómetragjald af akstri rafmagnsbíla, vetnisbíla og tengiltvinnbíla (bíla sem ganga bæði fyrir rafmagni og bensíni eða dísil og hægt er að stinga í samband). 

Gjaldið á ekki við um tvinnbíla (hybrid) sem ekki tengjast við rafmagn.

Greiðandi gjaldsins er eigandi bílsins. Undantekning er þegar eigandi er eigna- eða fjármögnunarleiga, til dæmis í tilfelli rekstrarleigubíla, þá er umráðamaður greiðandi. Gjaldið nær til fólksbifreiða og sendibifreiða.

Gjald

Upphæðin er:

  • 6 krónur á hvern kílómetra fyrir rafmagnsbíla og vetnisbíla
  • 2 krónur á hvern kílómetra fyrir tengiltvinnbíla

Skráning kílómetrastöðu

Stöðu á kílómetramæli skal skrá að lágmarki einu sinni á ári.

Hægt er að skrá kílómetrastöðuna á 30 daga fresti.

Hægt er að skrá:

Regluleg skráning kílómetrastöðu tryggir að þú borgir miðað við þinn meðalakstur, sem reiknast út frá síðustu tveimur skráningum á kílómetrastöðu.

Skráning minnkar líkur á:

  • að þú greiðir of mikið um hver mánaðamót

  • að þú greiðir of lítið og fáir háan uppgjörsreikning við næstu skráningu

Skráningar á síðasta degi mánaðar taka gildi næsta dag.

Leiðrétting á rangri skráningu

Ef þú skráir ranga tölu getur þú skráð aftur sama dag og þá gildir seinni talan. Á miðnætti lokast fyrir skráningar næstu 30 daga. 

Ef leiðrétta þarf ranga skráningu eða sækja um skráningu fyrir hönd eiganda bifreiðar má gera það með eftirfarandi umsókn.

Beiðni um leiðréttingu á skráningu kílómetrastöðu

Greiðsla

Gjaldið greiðist mánaðarlega. Greiðsluseðill er sendur í netbanka greiðanda. Gjalddagi er fyrsti virki dagur hvers mánaðar og eindagi 14 dögum síðar.

Fyrsti gjalddagi var 1. febrúar 2024.

Upphæð sem greidd er

Upphæð kílómetragjalds miðast við meðalakstur bílsins. Meðalakstur er reiknaður út frá síðustu tveimur skráningum á kílómetrastöðu hjá núverandi eiganda.

Reikna gjald miðað við áætlaðan meðalakstur (reiknivél á Ísland.is)

Ef ekki eru til tvær skráningar á kílómetrastöðu hjá núverandi eiganda er rukkað samkvæmt eftirfarandi áætlun:

Áætlun ríkisskattstjóra á meðalakstri

Eigandi eða umráðamaður bifreiðar Akstur á ári Akstur á dag
Einstaklingur 14 000 km 38,4 km
Fyrirtæki eða stofnun 40 000 km 109,6 km
Ökutækjaleiga 50 000 km 137,0 km
Leigubílstjóri 100 000 km 274,0 km

Leiðrétting á áætlun eða álagningu

Sé áætlun eða álagning kílómetragjalds byggð á röngum upplýsingum eða forsendum má senda inn beiðni um leiðréttingu með eyðublaði RSK 15.26. 

Opna beiðni um leiðréttingu á kílómetragjaldi hreinorku- og tengiltvinnbifreiðar

Uppgjör

Þegar þú skráir kílómetrastöðu er gert uppgjör fyrir tímabilið frá síðustu skráningu. Gerður er upp mismunur á því sem þú greiddir fyrirfram út frá áætlun og því sem þú hefðir átt að greiða miðað við raunakstur.

 
Ef þú hefur:

  • greitt of mikið færðu endurgreitt og á upphæðina reiknast inneignarvextir. Ef þú skuldar ríkissjóði gengur endurgreiðslan upp í skuldina hvort sem skuldin er vegna kílómetragjalds eða annarra gjalda.
  • greitt of lítið færðu reikning fyrir mismuninum að viðbættu 2,5% álagi á ársgrundvelli.

Álagningu má kæra til ríkisskattstjóra.

Ef skráningu er ekki sinnt

Afleiðingar þess að skrá ekki kílómetrastöðu að minnsta kosti einu sinni á hverju almanaksári:

  • Innheimt er vanskráningargjald að upphæð 50.000 krónur eftir 30. janúar.

  • Eigandi er boðaður í álestur á stöðu kílómetramælis hjá skoðunarstofu.

Vanskráningargjald lækkar um 50% ef þú lætur skrá stöðuna hjá faggiltri skoðunarstofu innan 15 daga.

Ef skráning hefur ekki verið gerð þremur mánuðum eftir álagningu vanskráningargjalds má lögreglan fjarlægja skráningarmerki. Merkin eru afhent aftur eftir að skráning hjá faggiltri skoðunarstofu hefur farið fram.

Ef ekki er greitt

Afleiðingar þess að greiða ekki kílómetragjaldið.

  • Synjun um reglubundna skoðun.
    Ef þú ert með gjaldfallinn reikning vegna kílómetragjalds skal skoðunarmaður neita um skoðun.

  • Krefjast má nauðungarsölu.
    Ógreitt kílómetragjald, vanrækslugjald, dráttarvextir og innheimtukostnaður hvílir sem lögveð á bílnum. Þetta veð (skuld) hefur forgang fram yfir önnur veð sem gætu verið á bílnum, til dæmis vangreidd bílalán. Það þýðir að krefjast má nauðungarsölu á bílnum upp í skuldirnar án dóms, sáttar eða fjárnáms.

  • Framkvæma má fjárnám.
    Einnig er heimilt að innheimta gjaldfallnar skuldir vegna kílómetragjalds og vanrækslugjalds með fjárnámi hjá skráðum eiganda eða umráðamanni án dóms, sáttar eða fjárnáms.

Uppgjör við eigendaskipti

Við eigendaskipti eða skráningu á nýjum umráðamanni bifreiðar í ökutækjaskrá þarf að skrá kílómetrastöðu á akstursmæli.

Kaupandi eða nýr umráðamaður þarf að samþykkja skráða stöðu kílómetramælis. Við breytinguna er uppgjör er sent á seljanda.

Kílómetragjaldið er innheimt af nýjum eiganda eða umráðamanni frá dagsetningu skráningar í ökutækjaskrá.

Afskráning og geymsla númeraplatna

Afskráning

Við afskráningu bifreiðar þarf að skrá stöðu á kílómetramæli um leið og afskráning er tilkynnt til Samgöngustofu.

Ef ekki er hægt að lesa af mæli, til dæmis vegna þess að bíllinn er týndur eða ónýtur er miðað við þær skráningar sem til eru. Ef engar skráningar eru til er miðað við áætlun ríkisskattstjóra á meðalakstri.

Bifreiðar sem eru ekki á númerum

Ekki þarf að greiða kílómetragjald af bifreiðum þegar númeraplötum hefur verið skilað inn í geymslu til skráningaraðila.

Skilyrði fyrir undanþágunni er að staða á kílómetramæli sé skráð þegar númeraplötum er skilað inn til geymslu.

Flutningur bíla frá Íslandi

Flutningur frá Íslandi

Ekki þarf að greiða kílómetragjald af bílum sem eru fluttir úr landi í takmarkaðan tíma.

Skilyrði fyrir undanþágunni er að staða á kílómetramæli sé skráð

  • þegar bifreið er flutt úr landi

  • þegar bifreið er flutt til Íslands aftur

og staðfesting send til Skattsins. Staðfesting getur verið inn- og útflutningsskýrsla eða farmiði.

Fyrsta skráning

Skylt var að skrá stöðu kílómetramælis fyrir 20. janúar 2024.

Ef skráningu var ekki sinnt var:

  • innheimt vanskráningargjald að upphæð 20.000 krónur eftir 30. janúar
  • greiðandi boðaður í álestur hjá faggiltri skoðunarstofu sem mun skrá stöðu kílómetramælis eftir 30. janúar

Leiðréttingar og kærur

Röng skráning kílómetrastöðu

Ef þú skráir ranga tölu getur þú skráð aftur sama dag og þá gildir seinni talan. Á miðnætti lokast fyrir skráningar næstu 30 daga. Þurfi að gera leiðréttingar fyrir þann tíma skal hafa samband við .

Ef leiðrétta þarf ranga skráningu eða sækja um skráningu fyrir hönd eiganda bifreiðar má gera það með eftirfarandi umsókn.

Beiðni um leiðréttingu á skráningu kílómetrastöðu

Leiðrétting á áætlun eða álagningu

Álagning kílómetragjalds er kæranleg til ríkisskattstjóra innan 30 daga frá dagsetningu tilkynningar.

Sé áætlun eða álagning kílómetragjalds byggð á röngum upplýsingum eða forsendum má senda inn beiðni um leiðréttingu með eyðublaði RSK 15.26.

Opna beiðni um leiðréttingu á kílómetragjaldi hreinorku- og tengiltvinnbifreiðar

Kæra til yfirskattanefndar

Heimilt er að kæra úrskurð ríkisskattstjóra og endurákvörðun til yfirskattanefndar samkvæmt ákvæðum laga um yfirskattanefnd.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum