Endurgreiðsla virðisaukaskatts

Í lögum um virðisaukaskatt er gert ráð fyrir því að í tilteknum tilvikum sé virðisaukaskattur endurgreiddur vegna innlendra viðskipta. Til dæmis er gert ráð fyrir því að sveitarfélögum sé í vissum tilvikum endurgreiddur virðisaukaskattur. Skatturinn sér um framkvæmd ákveðinna endurgreiðslna vegna viðskipta sem átt hafa sér stað innanlands fyrir hönd Ríkisskattstjóra. Þannig sér embættið um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til björgunarsveita, slökkviliða og gjafa sem gefnar eru til líknarmála. Heimildir fyrir endurgreiðslu á virðisaukaskatti er að finna í 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna brunavarna

Með lögum nr. 69/2012 um breytingu á lögum um virðisaukaskatt er kveðið á um að Skatturinn skuli endurgreiða sveitarfélögum og stofnunum eða félögum alfarið í þeirra eigu sem sinna lögbundnu hlutverki sveitarfélags á sviði brunavarna, brunamála eða mengunarvarna virðisaukaskatt af innflutningi eða kaupum á þeim ökutækjum og tækjabúnaði sem tilgreind eru í greininni.

Í framkvæmd hafa mótast ákveðnar reglur varðandi endurgreiðslur virðisaukaskatts sem hafðar hafa verið til hliðsjónar af Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna endurgreiðslna til sveitarfélaga eða slökkviliða á þeirra vegum. Í lögunum er að finna sambærilegar reglur þar sem talin eru upp í fimm töluliðum þau ökutæki og tækjabúnaður sem geta fallið undir ákvæðið, m.a. bifreiðar, tækjabúnaður, hlífðarfatnaður o.fl. sem nauðsynlegur er vegna slökkvistarfa.

Í lögunum kemur fram að fjarskiptabúnaður fyrir slökkvilið svo sem boðtæki, talstöðvar og farsímar skuli falla undir ákvæðið. Eingöngu er um að ræða fjarskiptabúnað sem nauðsynlegur er vegna slökkvistarfa eða mengunarvarna og fellur fjarskiptabúnaður til annarra starfsmanna sveitarfélaga en þeirra sem sinna lögbundnum slökkvistörfum eða mengunarvörnum á vegum sveitarfélags því ekki undir ákvæðið.

Skilyrði endurgreiðslu er að seljandi vöru eða þjónustu sé skráður á virðisaukaskattskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað.  

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar

Lög nr. 50/1988 , um virðisaukaskatt

Lög nr. 69/2012 um breytingu á lögum um virðisaukaskatt

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum