Að sækja staðfest afrit skattframtals af þjónustuvef

Mögulegt er að nálgast staðfest afrit skattframtals á PDF-formi sem móttakandi getur sannreynt að sé frá skattyfirvöldum.

Til að sækja afrit þarf að fylgja eftirfarandi skrefum á þjónustusíðunni:


Smellt á framtal og svo staðfest afrit framtals

  • Innskráning á þjónustuvef með rafrænum skilríkjum eða veflykli.
  • Eftir innskráningu, smella á „Framtal“ efst á síðunni og þar undir Staðfest afrit framtals.
  • Þar kemur upp listi yfir öll síðustu framtöl. Smella svo á hnappinn „Sækja afrit“. Einnig er hægt að sækja fylgiblöð, ef einhver eru, með hverju framtali fyrir sig.
  • Vista þarf afritið niður í tölvuna eða snjalltækið.
  • Skjalið vistast sem læst og undirritað PDF-skjal. Móttakandi, sem fær framtalið afhent, sem PDF-skrá getur sannreynt hvort skjalið sé í raun og veru frá Skattinum með því að opna slóðina www.skatturinn.is/sannreyna.

Vinsamlegast athugið að afrit telst ekki staðfest af Skattinum hafi það verið prentað út. 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum