Innskráning á vef

Leiðbeiningar um innskráningarleiðir

Skatturinn leggur ríka áherslu á notkun rafrænna skilríkja til auðkenningar þar sem við á. Þegar ekki er unnt að nota rafræn skilríki gefur Skatturinn út nokkrar tegundir af veflyklum sem bera mismunandi réttindi. Hér eru upplýsingar um ólíkar innskráningaleiðir á þjónustuvef Skattsins og leiðbeiningar um hvernig má nálgast veflykla.

Dánarbú

Forráðamaður dánarbús getur óskað eftir veflykli dánarbús.

Opna umsókn um veflykil dánarbús

Í viðhengi með umsókninni þarf að fylgja með afrit af umboði frá sýslumanni.

Með veflyklinum er hægt að fá aðgang að þjónustusíðu hins látna, skuldastöðu, framtölum, hægt að skila framtali og öðru sem getur reynst nauðsynlegt.

Einstaklingur - aðalveflykill

Innskráning á þjónustuvef Skattsins er möguleg með:

  • Rafrænum skilríkjum
  • Kennitölu og veflykli

Hægt er að sækja um nýjan aðalveflykil og fá hann:

  • Sendan í netbanka undir rafræn skjöl
  • Sendan í bréfpósti á skráð lögheimili

Erlendis búsettir

Þau sem ekki hafa íslenskt lögheimili, íslenskan heimabanka eða íslensk rafræn skilríki geta sótt um að fá veflykil að þjónustusíðu Skattsins sendan á lögheimili sitt erlendis.

Sækja um veflykil fyrir erlendis búsetta

Fyrirtæki - aðalveflykill

Aðalveflykill veitir til dæmis aðgang að skuldastöðu, framtalsskilum, álagningarseðli og gagnaskilum. 

Hafi veflykill glatast er mögulegt að sækja um nýjan aðalveflykil og fá hann:

  • Sendan í netbanka undir rafræn skjöl
  • Sendan í bréfpósti á skráð lögheimili félagsins
Prókúruhafi, framkvæmdarstjóri eða stjórnarformaður (stjórnarmaður í eins manns stjórn) getur fengið veflykil afhentan á næstu starfsstöð Skattsins gegn framvísun persónuskilríkja.

Athygli er vakin á að:

  • Rafræn skilríki stjórnanda virka ekki til gagnaöflunar á þjónustusíðunni.
  • Aðalveflykill veitir ekki fullan aðgang að öllu efni á þjónustuvef. En þó að t.d. skuldastöðu, framtalsskilum, álagningarseðli og gagnaskilum.

Húsfélag

Hægt er að sækja um veflykil fyrir húsfélag og fá hann:

  • Sendan í netbanka undir rafræn skjöl
  • Sendan í bréfpósti á skráð lögheimili húsfélagsins

Sé óskað eftir að fá veflykil í bréfpósti er aðeins hægt að senda á skráð heimilisfang samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins. Mikilvægt er að hafa póstkassa/póstlúgu vandlega merkta húsfélaginu.

Sækja um veflykil fyrir húsfélag

Rafræn skilríki erlendis

Í nýjustu útgáfu Auðkennisappsins er hægt að virkja rafræn skilríki með sjálfsafgreiðslu - hvar sem er í heiminum, en viðkomandi þarf að:

  • Hafa náð 18 ára aldri
  • Hafa afnot að snjalltæki með NFC stuðningi
  • Hafa gilt íslenskt vegabréf

Nánari upplýsingar um auðkennisappið og leiðbeiningar

Skilalykill fyrir fagaðila

Við afhendingu á aðalveflykli fylgir skilalykill fagaðila. 

Sé óskað eftir nýjum skilalykli fagaðila, er mögulegt að:

  • Breyta skilalykli fagaðila
    Það er gert með innskráningu á skattur.is - með aðalveflyklinum (einstaklingar geta notað rafræn skilríki). Velja þarf efst hægra megin á síðunni, undir nafni innskráningaraðila, Veflyklar - Skilalykill fagaðila - Breyta +.

Staðgreiðsla (fyrir launagreiðendur)

Þegar skráning á launagreiðendaskrá er staðfest er hægt að sækja um veflykil á þjónustusíðu Skattsins.

Einnig er hægt að sækja um að fá veflykilinn að nýju í heimabanka ef hann glatast.

Sækja um veflykil staðgreiðslu

Virðisaukaskattur

Þegar skráning á virðisaukaskattaskrá er staðfest er hægt að sækja um veflykil á þjónustusíðu Skattsins.
Einnig er hægt að sækja um að fá veflykilinn að nýju í heimabanka ef hann glatast.

Sækja um veflykil virðisaukaskatts


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum