Bifreiðagjald
Gjaldskylda og greiðsla bifreiðagjalds
Bifreiðagjald er lagt á öll vélknúin ökutæki sem skráð eru hér á landi. Orkugjafi ökutækis skiptir ekki máli.
Skráður eigandi ber ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Bifreiðagjald er greitt í hlutfalli við skráningartíma, en gjald fyrir nýskráða bifreið fellur í eindaga 15 dögum eftir nýskráningu.
Eftirfarandi ökutæki eru gjaldskyld:
- Ökutækjum sem ætluð eru til fólks- eða vöruflutninga, á þremur hjólum og fleirum, eru a.m.k. 400 kg að eigin þyngd og hönnuð til hraðari aksturs en 30 km/klst.
- Ökutækjum sem draga önnur ökutæki og hönnuð eru til hraðari aksturs en 30 km/klst.
- Ökutækjum sem ætluð eru til fólks- eða vöruflutninga eða til að draga annað ökutæki og eru búin beltum og/eða stýrimeiðum/stýrihjólum og a.m.k. 400 kg að eigin þyngd.
- Bifhjólum sem hvorki telst bifreið né torfærutæki, eru aðallega ætlað til fólks- eða vöruflutninga, eru á tveimur hjólum eða fleiri, með eða án hliðarvagns og eru a.m.k. 400 kg að eigin þyngd.
Fjárhæð bifreiðagjalds og gjaldtímabil
Bifreiðagjald miðast við skráða losun koltvísýrings (CO2) ökutækis, en hún er mæld í grömmum á hvern ekinn kílómetra. Tveir staðlar eru fyrir mælingu á losun koltvísýrings
- NEDC – Evrópska aksturslotan
- WLTP – Samræmd prófunaraðferð
Gjald fyrir ökutæki 3.500 kg eða léttari
Bifreiðagjald er 20.500 kr. á hvoru gjaldtímabili. Sé losun CO₂ umfram ákveðin mörk hækkar gjaldið um tiltekna fjárhæð fyrir hvert gramm CO₂-losunar:
| Staðall | CO₂-losun gr/km | Fjárhæð |
|---|---|---|
| NEDC | umfram 168 g/km | 181 kr. |
| WLTP | umfram 204 g/km | 149 kr. |
| Bæði NEDC og WLTP | umfram 204 g/km (miðað við WLTP) | 149 kr. |
Liggi upplýsingar um skráða losun koltvísýrings ekki fyrir er hún reiknuð með eftirfarandi reikningsaðferð:
- (0,12g x eigin þyngd í kg) + 50g
Gjald fyrir ökutæki þyngri en 3.500 kg
Bifreiðagjald bifreiða þyngri en 3.500 kg er:
- 71.160 kr. grunngjald
- Aukalega 2,99 kr. fyrir hvert kíló umfram 3.500 kg.
Bifreiðagjald getur þó að hámarki orðið 111.340 kr. á hvoru gjaldtímabili.
Gjaldtímabil, gjalddagar og eindagar
Gjaldtímabil eru tvö, 1. janúar til 30. júní og 1. júlí til 31. desember.
Gjalddagi vegna fyrra tímabils er 1. janúar og eindagi 15. febrúar. Gjalddagi vegna seinna tímabils er 1. júlí og eindagi 15. ágúst.
Álagning
Álagning og innheimta er í höndum Skattsins og þangað má senda beiðnir um endurgreiðslur og leiðréttingu.
Kæruleið
Greiðanda bifreiðagjalds er heimilt að kæra til ríkisskattstjóra álagningu bifreiðagjalds innan 30 daga frá því að gjaldið var ákvarðað. Úrskurðir ríkisskattstjóra eru kæranlegir til yfirskattanefndar.
Eigendaskipti
Við eigendaskipti er bifreiðagjald endurgreitt til seljanda í hlutfalli við þann tíma sem eftir er af gjaldtímabilinu. Kaupandi fær kröfu fyrir því sem eftir er af gjaldtímabilinu, með eindaga 15 dögum eftir skráða dagsetningu eigendaskipta í ökutækjaskrá Samgöngustofu.
Óheimilt er að skrá eigendaskipti að bifreið nema gjaldfallið bifreiðagjald hafi verið greitt. Ef tilkynnt er um eigendaskipti án greiðslu bifreiðagjalds fara eigendaskipti í bið.
Með því að skrá inn dagsetningu eigendaskipta í reiknivél bifreiðagjalds er hægt að sjá skiptingu gjaldsins milli seljanda og kaupanda.
Önnur gjöld á ökutæki
Skilagjald (áður úrvinnslugjald)
Skilagjald er lagt á samhliða bifreiðagjöldum á öll ökutæki sem eru gjaldskyld samkvæmt lögum um bifreiðagjald. Gjaldið er 900 kr. og er einnig lagt á ökutæki sem eru sérstaklega undanþegnar greiðslu bifreiðagjalds, til dæmis:
- ökutæki með skráningarnúmer í innlögn
- ökutæki í eigu bótaþega
- ökutæki í eigu björgunarsveita
Gjaldskylda fellur niður frá og með upphafi fyrsta gjaldtímabils eftir að greitt hefur verið skilagjald af ökutækinu í full 15 ár og fyrir bifreiðir sem eru eldri en 25 ára í upphafi gjaldárs.
Þegar ökutæki er afhent til móttökustöðvar til endurnýtingar og endanlegrar förgunar er eiganda greitt 30.000 kr. skilagjald.
Úrvinnslugjald
Úrvinnslugjald 15.000 kr. er lagt á hvert gjaldskylt ökutæki við nýskráningu.
Undanþágur
Undanþága vegna greiðslna frá Tryggingastofnun
Bifreiðar í eigu þeirra sem fá eftirfarandi greiðslur frá Tryggingastofnun eru undanþegnar bifreiðagjaldi:
- Örorkustyrk
- Örorkulífeyri
- Hlutaörorkulífeyri
- Sjúkra- og endurhæfingargreiðsur
- Bensínstyrk
- Umönnunargreiðslna vegna örorku barna
Heimilt er að fella niður af einni bifreið í eigu einstaklings og ef einstaklingur á fleiri en eina bifreið nær niðurfellingin til þyngstu bifreiðar í eigu hvers og eins.
Viðkomandi þarf að vera skráður eigandi eða umráðamaður samkvæmt eignarleigusamningi til að hægt sé að fella niður bifreiðagjald. Ekki er nóg að bifreið sé skráð á maka.
Skilagjald, sem lagt er á samhliða bifreiðagjaldi, fellur ekki niður.
Umsókn um niðurfellingu
Alla jafna fellur bifreiðagjald sjálfkrafa niður. Ekki þarf að sækja um.
Komi sú staða upp að bifreiðagjald fellur ekki sjálfkrafa niður eða fella þarf niður bifreiðagjald eftir eigendaskipti, innlögn númera eða annað þarf að sækja um niðurfellingu með því að fyllta út eyðublað RSK 15.23 og:
- senda í tölvupósti á netfangið trukkur@skatturinn.is
- eða koma með það útfyllt í næstu afgreiðslu Skattsins
- eða senda í pósti til Skattsins, Katrínartúni 6, 101 Reykjavík
Undanþágur frá greiðslu bifreiðagjalds
Bifreiðir sem uppfylla neðangreind skilyrði skulu undanþegnar bifreiðagjaldi:
- Bifreiðir í eigu þeirra sem njóta örorkustyrks, örorkulífeyris, hlutaörorkulífeyris, sjúkra- og endurhæfingargreiðslna, bensínstyrks eða umönnunargreiðslna vegna örorku barna (þó einungis ein bifreið fyrir hvern rétthafa).
- Bifreiðir í eigu björgunarsveita.
- Bifreiðir sem eru eldri en 25 ára í upphafi gjaldárs.
- Bifreiðir sem eru með skráningarnúmer í innlögn hjá skráningaraðila og er bifreiðagjald fellt niður í hlutfalli við þann tíma sem númer eru í innlögn svo og ónýtar bifreiðir, sem sannanlega hafa ekki verið í notkun á gjaldtímabilinu.
- Bifreiðir sem tímabundið hafa verið fluttar úr landi. Framvísa ber útflutnings- og innflutningsskýrslum til sönnunar á tímabundnum útflutningi.
- Ökutæki sem framleidd eru og skráð með metan eða metanól sem aðalorkugjafa eða hefur verið breytt þannig að þau geti nýtt metan og breytingin hlotið vottun skoðunarstöðvar skulu greiða lágmarks bifreiðagjald.
- Ökutæki sem samkvæmt skilgreiningu umferðarlaga eru knúin vetni eða rafhreyfli að öllu leyti skulu greiða lágmarks bifreiðagjald.
Kæruleið
Greiðanda bifreiðagjalds er heimilt að kæra til ríkisskattstjóra álagningu bifreiðagjalds innan 30 daga frá því að gjaldið var ákvarðað. Úrskurðir ríkisskattstjóra eru kæranlegir til yfirskattanefndar.
Ítarefni
Hvar finn ég reglurnar?
Almennt um bifreiðagjald - lög nr. 39/1988, um bifreiðagjald
Skilagjald og úrvinnslugjald á ökutæki - lög nr. 162/2002 um úrvinnslugjald

