Fjármagnstekjuskattur
Fjármagnstekjuskattur er lagður á tekjur einstaklinga af eignum, utan atvinnurekstrar.
Fjármagnstekjuskattur er lagður á:
- Vaxtatekjur (t.d. af bankainnstæðum og skuldabréfum)
- Arð
- Söluhagnað
-
Leigutekjur (ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt – sjá nánar um útleigu)
Ef tekjurnar tengjast atvinnurekstri eru þær ekki skattlagðar með fjármagnstekjuskatti, heldur eftir reglum um tekjur í rekstri.
Fjármagnstekjur og aðrir skattar
Á fjármagnstekjur er ekki lagt útsvar og þær hafa engin áhrif á þrepaskiptingu tekjuskatts.
Þó að fjármagnstekjur hafi ekki áhrif á tekjuskattsþrep, eru þær teknar með við útreikning vaxtabóta og barnabóta.
Um skattlagningu einstakra fjármagnstekna
Staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts
Af vaxtatekjum og arði er dregin staðgreiðsla en fjármagnstekjuskattur af söluhagnaði og leigutekjum er greiddur eftirá.
Arður
Ef þú færð arð frá félagi:
-
Félagið heldur eftir skatti af arðinum áður en hann er greiddur út.
-
Þetta á við hvort sem arðurinn er greiddur í peningum, kröfum eða öðrum verðmætum.
Félagið sem greiðir út arðinn skilar svo inn hlutafjármiðum í janúar ár hvert með upplýsingum um:
Hlutafjáreign
-
Greiddan arð
-
Skatt sem dreginn var frá
Vextir
Bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir staðgreiðsluskyldir aðilar halda eftir fjármagnstekjuskatti áður en vextirnir eru greiddir út. Þetta á við um þegar vextir eru greiddir vegna:
-
Inneigna
-
Skuldabréfa
-
Krafna
Frítekjumark kemur ekki til greina við staðgreiðsluna – það er tekið tillit til þess síðar við álagningu.
Greiðsla án staðgreiðslu
Af vaxtatekjum sem greidd er með öðrum hætti, t.d. af kröfum í eigin innheimtu, er ekki greidd staðgreiðsla, heldur er fjármagnstekjuskattur af þeim greiddur eftirá samkvæmt upplýsingum í skattframtali.
Ítarefni
Hvar finn ég reglurnar?
Fjármagnstekjur – C-liður 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt
Fjármagnstekjur er féllu til á árinu 2009 – 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXIX í lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt
Skattprósenta og frítekjumark – 3. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt
Staðgreiðsla – lög nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur
Tímamark tekjufærslu fjármagnstekna – 2. mgr. 8. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt
Eyðublöð
Kaup og sala eigna - RSK 3.02
Mótreikningur, vegna tapaðra fjármagnstekna - RSK 3.16
Einu sinni var...
Fjármagnstekjuskattur var tekinn upp á árinu 1997 og var skattprósenta lengst af 10%. Frá árinu 2009 hefur skattprósentan hins vegar tekið breytingum.
Þróun fjármagnstekjuskatts:
- 10% frá 1. janúar 1997 til 30. júní 2009
- 15% frá 1. júlí til 31. desember 2009
- 18% frá 1. janúar 2010 til 31. desember 2010
- 20% frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2017
- 22% frá 1. janúar 2018
Ítarefni
Fjármagnstekjur er féllu til á árinu 2009 - 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXIX í lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt
Hækkun í 18% - b-liður 13. gr. laga nr. 128/2009, um tekjuöflun ríkisins
Hækkun í 20% - 1. gr. laga nr. 164/2010, um ráðstafanir í ríkisfjármálum
Skattlagning vaxtatekna hjá einstaklingum utan rekstrar - ákvarðandi bréf nr. 2/2013
Annað
