Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra

Einstaklingar á aldrinum 16 til 69 ára sem hafa tekjur yfir tekjumörkum greiða gjald í framkvæmdasjóð aldraðra.

Gjaldið er lagt á við álagningu opinberra gjalda ár hvert.

Undanþegnir gjaldinu eru elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Tekjustofn til útreiknings á gjaldinu samanstendur af:

  • tekjuskattsstofni
  • að viðbættum fjármagnstekjuskattsstofni.

Ef um er að ræða hjón eða samskattað sambúðarfólk bætist aðeins helmingur af sameiginlegum fjármagnstekjuskattsstofni við hjá hvoru þeirra.

Framkvæmdasjóður aldraðra er í vörslu heilbrigðisráðuneytisins og stjórn hans leggur fram tillögur til úthlutunar á hverju ári. Nánari upplýsingar má finna á vef Stjórnarráðsins.

Fjárhæð gjaldsins

Ár FjárhæðTekjumörk einstaklinga
Í álagningu 2025kr.14.0932.474.942 
Í álagningu 2024kr.13.749 2.276.569 
Í álagningu 2023kr. 13.2842.057.211
Í álagningu 2022kr.12.3341.938.025
Í álagningu 2021kr.12.0341.870.828
Í álagningu 2020kr.11.7401.833.671
Í álagningu 2019kr.11.4541.750.783
Í álagningu 2018kr.11.1751.718.678
Í álagningu 2017kr.10.9561.678.001
Í álagningu 2016kr.10.4641.637.600

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Annað


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum