Erlendir sérfræðingar

Information in English

Hinn 1. janúar 2017 tók gildi sérstök regla um skattlagningu erlendra sérfræðinga sem koma til starfa hingað til lands. Samkvæmt henni eru 25% af launum þeirra felld undan skattlagningu fyrstu þrjú árin frá ráðningu í starf, að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Sérstök nefnd, sem Fjármála- og efnahagsráðuneytið skipar, metur hvort skilyrðin séu uppfyllt.

Frá samþykkt umsóknar er staðgreiðslu opinberra gjalda haldið eftir af 75% tekna sem starfsmaður nýtur sem erlendur sérfræðingur.  Launatengd gjöld ásamt barnabótum og vaxtabótum tekur mið af heildarlaunum.

Sækja má um leiðréttingu á staðgreiðslu sem haldið hefur verið eftir að heildartekjum fram að samþykkt umsóknar á eyðublaði RSK 5.17.

Starfsmaður telst erlendur sérfræðingur séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:

  • Hann hafi ekki verið búsettur eða heimilisfastur hér á landi á næsta 60 mánaða samfelldu tímabili fyrir upphaf starfa hans hér á landi, en þó þannig að fyrstu þrír mánuðir dvalar hérlendis teljast ekki með

  • Hann búi yfir þekkingu sem ekki sé fyrir hendi hér á landi eða í litlum mæli.

Þá gildir reglan einungis ef hinn erlendi sérfræðingur:

  • er ráðinn til starfa hjá lögaðila sem hefur lögheimili eða fasta starfsstöð hér á landi og sá aðili greiði honum laun sem sérfræðingi; og
  • er ráðinn til að sinna verkefnum er krefjast sérþekkingar og reynslu sem ekki er fyrir hendi hér á landi eða í litlum mæli; og
  • hann starfi á sviði rannsókna, þróunar og/eða nýsköpunar, kennslu eða við úrlausn og/eða uppbyggingu sérhæfðra verkefna; eða
  • hann sinni framkvæmda- eða verkefnastjórnun eða öðrum verkefnum sem eru lykilþættir í starfsemi fyrirtækisins. 

Upplýsingar um umsóknir og form þeirra veitir Rannsóknarmiðstöð Íslands.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Eyðublöð

Annað


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum