Ökutækjastyrkur

Almennt

Með ökutækjastyrk er átt við þær greiðslur sem launþegi fær frá launagreiðanda fyrir að nota eigin bifreið í þágu launagreiðandans og sjálfur borið kostnað af. Hér getur bæði verið um að ræða að greidd sé föst mánaðarleg eða árleg fjárhæð eða að greitt sé samkvæmt kílómetragjaldi fyrir hvern ekinn kílómetra samkvæmt akstursdagbók eða akstursskýrslu.

Frádráttur kostnaðar á móti ökutækjastyrk

Frádrátt á móti ökutækjastyrk má færa samkvæmt sérstökum reglum ef bifreið launþega hefur sannanlega verið notuð vegna aksturs í þágu vinnuveitanda. Frádrátt má ekki færa á móti ökutækjastyrk sem var greiddur vegna ferða launþegans milli heimilis og vinnustaðar eða vegna annarra nota af bifreiðinni sem teljast til eigin nota hans. Frádráttur getur ekki verið hærri en ökutækjastyrkurinn.

Frádráttur er eingöngu heimill ef bæði eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  1. Fyrir liggi skriflegur afnotasamningur þar sem aksturserindum er skilmerkilega lýst.
  2. Færð hafi verið akstursdagbók eða akstursskýrsla, þ.m.t. á rafrænu formi, þar sem skráð er hver ferð, dagsetning, ekin vegalengd, aksturserindi, kílómetragjald, nafn og kennitala launamanns og einkennisnúmer viðkomandi ökutækis. Einnig þarf að liggja fyrir hver er heildarakstur bifreiðar á hverju ári. Færa skal þessi gögn reglulega og skulu þau vera aðgengileg skattyfirvöldum þegar þau óska þess.

Frádráttur er aldrei heimill á móti ökutækjastyrk sem greiddur er vegna nota í þágu launþegans sjálfs, s.s. vegna aksturs milli heimilis og vinnustaðar. Aki launamaður hins vegar beint frá heimili sínu til annars vinnustaðar en hins venjulega að beiðni launagreiðanda getur verið heimilt að færa frádrátt á móti greiðslum fyrir slík afnot ökutækis, enda séu þau afnot beinlínis tengd starfi launamannsins en ekki fólgin í því einu að komast á vinnustað.

Frádráttur

Frádráttur á móti fengnum ökutækjastyrk vegna aksturs í þágu launagreiðanda er ákvarðaður þannig:

Til frádráttar færist fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda. Tiltekið hámark er á frádrætti miðað við hvern ekinn kílómetra í þágu launagreiðanda og er það ákveðið á ári hverju. Aldrei leyfist þó hærri fjárhæð til frádráttar en talin er til tekna sem ökutækjastyrkur.

Frádráttur er ákvarðaður miðað við akstur á tilteknu kílómetrabili, en verður þó aldrei lægri en hefði orðið ef akstur hefði numið hámarksakstri samkvæmt akstursbilinu fyrir neðan, sbr. töflu fyrir hvert ár undir flipanum „Fjárhæðir“.

Staðgreiðsla skatts af ökutækjastyrk

Ökutækjastyrkur sem greiddur er sem föst mánaðarleg eða árleg fjárhæð er staðgreiðsluskyldur. Ef um er að ræða ökutækjastyrk sem greiddur er samkvæmt akstursdagbók (sundurliðuðum gögnum) fyrir hvern ekinn kílómetra og fjárhæðin er í samræmi við ákvörðun ferðakostnaðarnefndar ríkisins á hverjum tíma, má halda þeim ökutækjastyrk utan staðgreiðslu.

Fjárhæðir

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2024

Til frádráttar heimilast fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda, sbr. meðfylgjandi töflu.

Dæmi: Ef aksturinn er 2.500 km á árinu er leyfilegur frádráttur 2.500 x 131 kr. eða alls 327.500 kr.

Akstur í þágu launagreiðandaFrádráttur á hvern ekinn kílómetra
0-1.000 km141 kr.
1.001-2.000 km136 kr.
2.001-3.000 km131 kr.
3.001-4.000 km126 kr.
4.001-5.000 km122 kr.
5.001-6.000 km118 kr.
6.001-7.000 km114 kr.
7.001-8.000 km110 kr.
8.001-9.000 km106 kr.
9.001-10.000 km102 kr.
10.001-11.000 km99 kr.
11.001-12.000 km95 kr.
12.001-13.000 km92 kr.
13.001-14.000 km89 kr.
14.001-15.000 km86 kr.
15.001 og meira83 kr.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2023

Til frádráttar heimilast fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda, sbr. meðfylgjandi töflu.

Dæmi: Ef aksturinn er 2.500 km á árinu er leyfilegur frádráttur 2.500 x 124 kr. eða alls 310.000 kr.

Akstur í þágu launagreiðandaFrádráttur á hvern ekinn kílómetra
0-1.000 km134 kr.
1.001-2.000 km129 kr.
2.001-3.000 km124 kr.
3.001-4.000 km120 kr.
4.001-5.000 km116 kr.
5.001-6.000 km112 kr.
6.001-7.000 km108 kr.
7.001-8.000 km104 kr.
8.001-9.000 km100 kr.
9.001-10.000 km96 kr.
10.001-11.000 km91 kr.
11.001-12.000 km88 kr.
12.001-13.000 km85 kr.
13.001-14.000 km82 kr.
14.001-15.000 km79 kr.
15.001 og meira76 kr.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2022

Til frádráttar heimilast fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda, sbr. meðfylgjandi töflu.

Dæmi: Ef aksturinn er 2.500 km á árinu er leyfilegur frádráttur 2.500 x 116 kr. eða alls 290.000 kr.

Akstur í þágu launagreiðanda Frádráttur á hvern ekinn kílómetra
0-1.000 km 120 kr. 
1.001-2.000 km 118 kr.
2.001-3.000 km 116 kr.
3.001-4.000 km 102 kr.
4.001-5.000 km 99 kr.
5.001-6.000 km 97 kr.
6.001-7.000 km 95 kr.
7.001-8.000 km 94 kr.
8.001-9.000 km 92 kr.
9.001-10.000 km 90 kr.
10.001-11.000 km 85 kr.
11.001-12.000 km 83 kr.
12.001-13.000 km 81 kr.
13.001-14.000 km 79 kr.
14.001-15.000 km 77 kr.
15.001 og meira 72 kr.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2021

Til frádráttar heimilast fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda, sbr. meðfylgjandi töflu.

Dæmi: Ef aksturinn er 2.500 km á árinu er leyfilegur frádráttur 2.500 x 110 kr. eða alls 275.000 kr.

Akstur í þágu launagreiðanda
Frádráttur
0-1.000 kmkr.114
1.001-2.000 kmkr.112
2.001-3.000 kmkr.110
3.001-4.000 kmkr.97
4.001-5.000 kmkr.94
5.001-6.000 kmkr.92
6.001-7.000 kmkr.90
7.001-8.000 kmkr.89
8.001-9.000 kmkr.87
9.001-10.000 kmkr.85
10.001-11.000 kmkr.81
11.001-12.000 kmkr.79
12.001-13.000 kmkr.77
13.001-14.000 kmkr.75
14.001-15.000 kmkr.73
meiri en 15.000 kmkr.68

Unnt er að óska eftir hærri frádrætti í skattframtali ef greitt hefur verið fyrir akstur miðað við sérstakt gjald eða torfærugjald eins og það er ákvarðað af ferðakostnaðarnefnd ríkisins hverju sinni, og uppfyllt eru skilyrði þar um.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2020

Til frádráttar heimilast fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda, sbr. meðfylgjandi töflu.

Dæmi: Ef aksturinn er 2.500 km á árinu er leyfilegur frádráttur 2.500 x 107 kr. eða alls 267.500 kr.

Akstur í þágu launagreiðanda
Frádráttur
0-1.000 km kr. 111
1.001-2.000 km kr. 109
2.001-3.000 km kr. 107
3.001-4.000 km kr. 94
4.001-5.000 km kr. 92
5.001-6.000 km kr. 90
6.001-7.000 km kr. 88
7.001-8.000 km kr. 87
8.001-9.000 km kr. 85
9.001-10.000 km kr. 83
10.001-11.000 km kr. 79
11.001-12.000 km kr. 77
12.001-13.000 km kr. 75
13.001-14.000 km kr. 73
14.001-15.000 km kr. 71
meiri en 15.000 km kr. 66

Unnt er að óska eftir hærri frádrætti í skattframtali ef greitt hefur verið fyrir akstur miðað við sérstakt gjald eða torfærugjald eins og það er ákvarðað af ferðakostnaðarnefnd ríkisins hverju sinni, og uppfyllt eru skilyrði þar um.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2019

Til frádráttar heimilast fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda, sbr. meðfylgjandi töflu.

Dæmi: Ef aksturinn er 2.500 km á árinu er leyfilegur frádráttur 2.500 x 106 kr. eða alls 265.000 kr.

Akstur í þágu launagreiðanda   Frádráttur
0-1.000 km kr. 110
1.001-2.000 km kr. 108
2.001-3.000 km kr. 106
3.001-4.000 km kr. 93
4.001-5.000 km kr. 91
5.001-6.000 km kr. 89
6.001-7.000 km kr. 87
7.001-8.000 km kr. 86
8.001-9.000 km kr. 84
9.001-10.000 km kr. 82
10.001-11.000 km kr. 78
11.001-12.000 km kr. 76
12.001-13.000 km kr. 74
13.001-14.000 km kr. 72
14.001-15.000 km kr. 70
meiri en 15.000 km kr. 65

Unnt er að óska eftir hærri frádrætti í skattframtali ef greitt hefur verið fyrir akstur miðað við sérstakt gjald eða torfærugjald eins og það er ákvarðað af ferðakostnaðarnefnd ríkisins hverju sinni, og uppfyllt eru skilyrði þar um.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2018

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2017

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2016

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2015

Til frádráttar heimilast fjárhæð sem tekur mið af heildarakstri í þágu launagreiðanda, sbr. meðfylgjandi töflu.

Dæmi: Ef aksturinn er 2.500 km á árinu er leyfilegur frádráttur 2.500 x 112 kr. eða alls 280.000 kr.

Akstur í þágu launagreiðanda   Frádráttur
0-1.000 km kr. 116
1.001-2.000 km kr. 114
2.001-3.000 km kr. 112
3.001-4.000 km kr. 98
4.001-5.000 km kr. 96
5.001-6.000 km kr. 94
6.001-7.000 km kr. 92
7.001-8.000 km kr. 90
8.001-9.000 km kr. 88
9.001-10.000 km kr. 86
10.001-11.000 km kr. 82
11.001-12.000 km kr. 80
12.001-13.000 km kr. 78
13.001-14.000 km kr. 76
14.001-15.000 km kr. 74
meiri en 15.000 km kr. 68

Ef greitt er sérstakt gjald (ekki bundið slitlag) ef leyfilegur frádráttur 15% hærri. Sé greitt torfærugjald, fyrir akstur utan vega eða á vegslóðum sem ekki eru færir fólksbílum, er hann 45% hærri.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2014

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2013

    jan. - maí   júní -des.
Almennt kílómetragjald kr. 117,50 kr. 116,00
Sérstakt kílómetragjald kr. 135,13 kr. 133,40
Torfærugjald kr. 170,38 kr. 168,20

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2012

    jan. - maí   júní - des.
Almennt kílómetragjald kr. 111,00 kr. 117,50
Sérstakt kílómetragjald kr. 127,65 kr. 135,13
Torfærugjald kr. 160,95 kr. 170,38

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2011

  jan. - mar apr. - sept. okt. - des.
Almennt gjald 99 kr./km. 104,00 kr./km. 111,00 kr./km.
Sérstakt gjald 113,85 kr./km. 119,60 kr./km. 127,65 kr./km.
Torfærugjald 143,55 kr./km. 150,80 kr./km. 160,95 kr./km.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2010

  Jan Feb - des.
Almennt gjald 92,00 kr./km. 99,00 kr./km.
Sérstakt gjald 105,80 kr./km. 113,85 kr./km.
Torfærugjald 133,40 kr./km. 143,55 kr./km.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2009

Almennt kílómetragjald kr. 92,00
Sérstakt gjald kr. 105,80
Torfærugjald kr. 133,40

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2008

  Jan. - mars apríl - maí júní - sept. okt. -
Almennt kílómetragjald kr. 71,50 kr. 76,00 kr. 88,50 kr. 92,00
Sérstakt gjald kr. 82,20 kr. 87,40 kr. 101,80 kr. 105,80
Torfærugjald kr. 103,70 kr. 110,20 kr. 128,30 kr. 133,40

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2007

  Jan. - maí Júní - sept. 0kt. -
Almennt kílómetragjald kr. 68,00 kr. 69,50 kr. 71,50
Sérstakt gjald kr. 78,20 kr. 79,80 kr. 82,20
Torfærugjald kr. 98,60 kr. 100,80 kr. 103,70

Frádráttur á móti ökutækjastyrk 2006

  Jan. - maí Júní - nóv. Desember
Almennt kílómetragjald kr. 62,00 kr. 68,50 kr. 68,00
Sérstakt gjald kr. 71,30 kr. 78,80 kr. 78,20
Torfærugjald kr. 89,90 kr. 99,30 kr. 98,60

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Heimild til að færa frádrátt á móti ökutækjastyrk – 1. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt

Skilyrði fyrir því að halda ökutækjastyrk utan staðgreiðslu – 1. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu.

Skattmat

Eyðublöð

Ökutækjastyrkur, fylgiskjal með skattframtali - RSK 3.04

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum