Innflutningur ökutækja á íslenskum númerum
Ökutæki á íslenskum skráningarnúmerum má flytja aftur til Íslands án greiðslu aðflutningsgjalda og ekki þarf að sækja um skráningu að nýju nema ökutækið hafi verið afskráð við brottför.
Greiða þarf aðflutningsgjöld ef:
- Gjöld voru endurgreidd við útflutning
- Unnið var við ökutækið erlendis (s.s. breytingar, viðbætur)
Tollskoðun og farangur
Við komuna til landsins þarf:
-
Ferðamaðurinn, ökutækið og farangurinn að fara í almenna tollskoðun.
Gott að hafa í huga
Þú gætir þurft að sýna fram á:
-
Að varningurinn sem þú flytur inn sé tollfrjáls.
-
Að hlutur hafi verið keyptur hér á landi og tekinn með í ferð.
Til að auðvelda tollafgreiðslu er mikilvægt að geymda kvittanir fyrir vörum sem keyptar eru í ferðinni, sérstaklega ef unnið var við ökutækið (t.d. breytingar eða viðbætur).