FATCA

Þann 26. maí 2015 undirrituðu Ísland og Bandaríkin samning um regluleg upplýsingaskipti vegna fjármálastofnana.  Samningurinn er í samræmi við svokölluð FATCA (Foreign Account Tax Compliance Act) sem samþykkt voru í Bandaríkjunum á árinu 2010.

Samkvæmt lögunum og samningnum ber íslenskum fjármálastofnunum, eins og þær eru skilgreinar í samningnum, að standa skil árlega á upplýsingum um tekjur og eignir bandarískra skattaðila.  Upplýsingaskiptin fara fram með milligöngu ríkisskattstjóra.  Standi fjármálastofnanir ekki við upplýsingaskyldu sína eiga þær á hættu á að lagður verði 30% afdráttarskattur á greiðslur til þeirra sem eiga uppruna í Bandaríkjunum.

Opna samning um upplýsingaskipti

Skráning fjármálastofnana

Fjármálastofnun skal skráð hjá skattyfirvöldum eigi síðar en 30 dögum frá stofnun hennar. Vegna fjármálastofnana sem stofnaðar voru fyrir 1. janúar 2026 skal skráning fara fram í síðasta lagi þann 2. febrúar 2026.

Opna skráningareyðublað RSK 5.53 (íslenska)

Opna skráningareyðublað RSK 5.53 (English)

Áhættumat vegna CRS og FATCA upplýsingaskipta

Eyðublað RSK 24.01 um áhættumat vegna CRS og FATCA


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum