Starfsmannafélög

Starfsmannafélög fyrirtækja, stofnana og annarra vinnustaða geta sótt um skráningu og kennitölu í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Þegar búið er að stofna félagið er sótt um skráningu með því að fylla út eyðublað 17.01 og er því skilað inn ásamt samþykktum félagsins.  Sýnishorn af samþykktum.

Einnig þarf að skila inn tilkynningu um raunverulega eigendur.

Í þeim félögum þar sem enginn eigandi er þá er það sá/þeir sem raunverulega stjórna starfsemi félagsins sem teljast raunverulegir eigendur. Þetta geta verið stjórnarmenn, framkvæmdastjóri eða einhver einstaklingur / einstaklingar sem teljast stjórna starfseminni. Félögin sjálf verða að meta hver eða hverjir raunverulega stjórna starfseminni, við getum ekki ráðlagt hvað eigi að skrá, sjá nánar upplýsingar um skráningu raunverulegra eigenda.

Eingöngu er hægt að skila á pappír fyrir nýskráningar. Áður skráð félög þurfa að skila inn upplýsingum um raunverulega eigendur rafrænt.

Samþykktir verða að vera dagsettar og undirritaðar af stjórn félagsins. 

Hægt er að koma með umsókn í afgreiðslu okkar, senda í pósti eða skanna inn og senda í tölvupósti á fyrirtaekjaskra@skatturinn.is

Umsóknir eru teknar fyrir vikulega.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum