Félagasamtök og önnur félög
Almenn félagasamtök eru þau félög þar sem hópur fólks kemur saman til að ná fram ófjárhagslegum markmiðum. Þau sem sækja stofnfund slíks félags teljast stofnendur og á þeim fundi eru samþykkt lög (samþykktir) félagsins og kjörin stjórn.
Sækja má um skráningu félagasamtaka sem uppfylla ákveðin skilyrði og eru með þá starfsemi að ástæða er til að hafa skráð í opinberar skrár. Sem dæmi um almenn félög má nefna íþróttafélög, skákfélög, fagfélög, stéttarfélög, samtök vinnuveitenda, mannúðarfélög og menningarfélög.
Afgreiðslutími umsókna er allt að þrjár vikur. Hægt er að senda skannað afrit af stofngögnum á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is. Ekki er nauðsynlegt að skila inn frumritum af gögnum.
Umsókn um skráningu félagasamtaka
Sýnishorn af samþykktum fyrir félagasamtök
Tilkynning um raunverulega eigendur
Raunverulegir eigendur ásamt prókúruhafa eða meirihluta stjórnar skulu undirrita tilkynninguna. Eingöngu hægt að skila inn á pappír fyrir nýskráningar. Áður skráð félög skila inn upplýsingum um raunverulega eigendur rafrænt.
