Félagasamtök og sambærilegir aðilar

Skráning raunverulegra eigenda

Félagasamtök og sambærilegir aðilar þurfa að skila inn upplýsingum um raunverulega eigendur.

Í þeim tilvikum þar sem ekki er hægt að skrá raunverulegan eiganda lögaðila á grundvelli eignarhalds skal sá einstaklingur, einn eða fleiri, sem stjórnar starfsemi lögaðilans teljast raunverulegur eigandi. Það má skrá stjórn í heild, að hluta eða framkvæmdastjóra. Það er undir félaginu komið að meta hvaða einstaklingur það er, einn eða fleiri sem í raun stjórnar starfsemi félagsins. Þegar aðili er skráður raunverulegur eigandi á grundvelli stjórnunar þýðir það ekki að aðilinn sé „raunverulegur eigandi“ í samræmi við almenna málvenju. Félagið verður ekki talið hans eign í skilningi eignarréttar og skráningunni fylgir engin skattaleg ábyrgð eða skylda. Skráning raunverulegra eigenda felur ekki í sér aukna ábyrgð á viðkomandi einstaklinga umfram þá ábyrgð sem þegar fylgir því að starfa í félögum.

Hvernig skila ég upplýsingum um raunverulega eigendur?

Sé rétt stjórn skráð hjá félaginu í fyrirtækjaskrá er einfaldast fyrir stjórnarmann að fara inn á sitt svæði á skattur.is, velja tengsl við félög og skila inn tilkynningu. Eftir að tilkynningu hefur verið skilað inn þurfa allir aðilar sem skráðir voru að fara inn á sitt svæði og undirrita tilkynninguna með rafrænum skilríkjum. Sjá leiðbeiningar.

Ef upplýsingar í fyrirtækjaskrá eru ekki réttar þá þarf að skila inn tilkynningu um raunverulega eigendur á pappír, skrá þarf upplýsingar miðað við stöðu félagsins, ekki skráningu í fyrirtækjaskrá.

Tilkynning um raunverulega eigendur
Leiðbeiningar: Breyting á skráningu raunverulegra eigenda félagasamtaka o.fl.

Það eru ekki allir með rafræn skilríki?

Ef tilkynning er send inn rafrænt þurfa allir að undirrita með rafrænum skilríkjum. Við hvetjum fólk til að fá sér rafræn skilríki en ef það er ekki mögulegt þá þarf að skila inn tilkynningu á pappír. Ekki er hægt að skila hluta af tilkynningu rafrænt og hluta á pappír.

Stjórn hefur breyst, hvernig sendi ég inn tilkynningar?

1. Tilkynningu um stjórn, sjá eyðublað 17.30 - athugið að stjórn / varastjórn verður að vera skipuð í samræmi við samþykktir félagsins.

2. Tilkynningu um heimilisfang ef við á, sjá eyðublað 17.40.   

Tilkynning um stjórn
Tilkynning um heimilisfang

Félagið er hætt starfsemi, hvernig afskrái ég það?

Tilkynningu um slit má skanna inn og senda á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is

Leiðbeiningar vegna slita félagasamtaka

Ég er ekki lengur í stjórn félags en er skráður stjórnarmaður?

Tilkynning vegna einhliða úrsagnar úr stjórn o.fl. er hér á heimasíðu okkar.

Tilkynning um úrsögn úr stjórn

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum