Sameignarfélög

Sameignarfélög eru skráð hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Skila þarf inn stofngögnum til fyrirtækjaskrár og greiða skráningargjald. Hægt er að greiða með reiðufé, debetkorti eða leggja inn á reikning (sjá gjaldskrá).

Afgreiðslutími umsóknar um skráningu sameignarfélags er almennt um tíu til tólf virkir dagar frá því að gögn eru lögð inn til fyrirtækjaskrár séu þau fullnægjandi og greiðsla (eða greiðslukvittun) fylgir með gögnunum. Hægt er að senda skannað afrit af stofngögnum á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is. Ekki er nauðsynlegt að skila inn frumritum af gögnum.

Sameignarfélag er samstarfsform sem byggist á samningi tveggja eða fleiri aðila um sameiginlega fjárhagslega starfsemi þar sem allir félagsmenn bera beina, óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins.

Kennitala verður til við skráningu félags. ÍSAT-númer (íslensk atvinnugreinaflokkun) er skráð við stofnun samkvæmt upplýsingum stofnenda um aðalstarfsemi félagsins.

Stofnendur og síðar félagsmenn í sameignarfélagi geta verið lögráða einstaklingar og lögaðilar. Skylt er að gera skriflegan félagssamning um sameignarfélög sem eru skráð og skal samningurinn undirritaður af öllum stofnendum og þeim er síðar ganga í félagið.

Sé stjórn kosin, framkvæmdastjóri ráðinn og endurskoðendur eða skoðunarmenn kosnir skal fylgja með staðfest endurrit af fundargerð um kjör þeirra ásamt yfirlýsingu þeirra um að þeir taki starfið að sér.

Skylt er að skrá raunverulega eigendur sameignarfélaga og skal tilkynning um þá fylgja stofngögnum félagsins.

Taka skal fram í félagssamningi hvort félagið sé sjálfstæður eða ósjálfstæður skattaðili. Athygli er vakin á því að hjón ein og sér eða með ófjárráða börnum sínum geta ekki myndað samlagsfélag eða sameignarfélag er sé sjálfstæður skattaðili.

Hér má nálgast sýnishorn af nauðsynlegum stofngögnum. Hægt er að breyta og aðlaga félagssamninginn að eigin þörfum, prenta út og undirrita.

Gæta þarf þess að:

  • Tilkynningarblað sé fyllt út í samræmi við stofngögn.
  • Rithandarsýnishorn sé rétt.
  • Allar undirskriftir séu réttar.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Annað ítarefni

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum