Samlagsfélög

Samlagsfélög eru skráð hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Skila þarf inn stofngögnum til fyrirtækjaskrár og greiða skráningargjald. Hægt er að greiða með reiðufé, debetkorti eða leggja inn á reikning (sjá gjaldskrá).

Afgreiðslutími umsóknar um skráningu samlagsfélags er almennt um tíu til tólf virkir dagar frá því að gögn eru lögð inn til fyrirtækjaskrár séu þau fullnægjandi og greiðsla (eða greiðslukvittun) fylgir með gögnunum. Hægt er að senda skannað afrit af stofngögnum á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is. Ekki er nauðsynlegt að skila inn frumritum af gögnum.

Samlagsfélag er samstarfsform sem byggist á samningi tveggja eða fleiri aðila um sameiginlega fjárhagslega starfsemi þar sem félagsmönnum er skipt í tvær tegundir, annars vegar er a.m.k. einn félagsmaður sem ber beina, óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins og hins vegar einn eða fleiri félagsmenn sem aðeins ábyrgjast skuldir félagsins að því marki sem framlagi þeirra nemur (samlagsmenn). Þannig er fjárhagsleg áhætta þeirra takmörkuð með svipuðum hætti og félagsmanna í hlutafélögum, þ.e. við ákveðna upphæð.

Kennitala verður til við skráningu félags. ÍSAT-númer (íslensk atvinnugreinaflokkun) er skráð við stofnun samkvæmt upplýsingum stofnenda um aðalstarfsemi félagsins.

Stofnendur og síðar félagsmenn í samlagsfélagi geta verið lögráða einstaklingar og lögaðilar. Skylt er að gera skriflegan félagssamning um samlagsfélög sem eru skráð og skal samningurinn undirritaður af öllum stofnendum og þeim er síðar ganga í félagið.

Sé stjórn kosin, framkvæmdastjóri ráðinn og endurskoðendur eða skoðunarmenn kosnir skal fylgja með staðfest endurrit af fundargerð um kjör þeirra ásamt yfirlýsingu þeirra um að þeir taki starfið að sér.

Skylt er að skrá raunverulega eigendur samlagsfélaga og skal tilkynning um þá fylgja stofngögnum félagsins.

Taka skal fram í félagssamningi hvort félagið sé sjálfstæður eða ósjálfstæður skattaðili. Athygli er vakin á því að hjón ein og sér eða með ófjárráða börnum sínum geta ekki myndað samlagsfélag eða sameignarfélag er sé sjálfstæður skattaðili.

Hér má nálgast sýnishorn af nauðsynlegum stofngögnum. Hægt er að breyta og aðlaga félagssamninginn að eigin þörfum, prenta út og undirrita.

Gæta þarf þess að:

  • Tilkynningarblað sé fyllt út í samræmi við félagssamning.
  • Rithandarsýnishorn séu rétt.
  • Allar undirskriftir séu réttar.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Annað ítarefni

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum