Vottorð um skuldleysi
Skuldleysisvottorð eru gefin út af innheimtumönnum og til staðfestingar að ekki séu til staðar gjaldfallnar skattkröfur á kennitölu einstaklinga og fyrirtækja.
Sækja má um skuldleysisvottorð á Ísland.is.
Opna umsóknÁður en skuldleysisvottorð er mælt með því að skoða stöðu við ríkissjóð og stofnanir á mínum síðum Ísland.is Aðeins er hægt að sækja vottorðið ef staðan er 0 kr.
Til þess að fá skuldleysisvottorð þarf að greiða alla gjaldfallna skatta og gjöld. Athugið að kröfur geta verið gjaldfallnar þó þær séu ekki komnar á eindaga og geta komið í veg fyrir afgreiðslu vottorðsins.
- Vottorðið er á íslensku.
Fyrirtæki
Til þess að sækja vottorð fyrir fyrirtæki eða lögaðila þá þarf innskráður notandi að vera skráður prókúruhafi fyrirtækis í fyrirtækjaskrá Skattsins.
Nánari upplýsingar
Ítarlegri upplýsingar um hreyfingar og stöðu einstaklinga og lögaðila við ríkissjóð má finna undir flokknum fjármál á Mínum síðum á Ísland.is
Ítarefni
Hvar finn ég reglurnar?
Lög nr. 150/2019 um innheimtu opinberra skatta og gjaldaAnnað
Greiða verður alla gjaldfallna skatta og gjöld svo hægt sé að gefa út skuldleysisvottorð. Í þessu sambandi er bent á dóm Hæstaréttar í máli nr. 525/2011.