Fjármagnstekjur

Fjármagnstekjuskattur er lagður á skattskyldar fjármagnstekjur einstaklinga, sem eru vaxtatekjur, arður, söluhagnaður, leigutekjur utan rekstrar og eftir atvikum höfundaréttargreiðslur. Söluhagnaður af eignum einstaklinga getur þó verið skattfrjáls eftir eignarhaldstíma eða tegund eigna.


Leigutekjur

Tekjur af útleigu íbúðarhúsnæðis, frístundahúsnæðis eða annars húsnæðis eru skattlagðar sem atvinnurekstrartekjur nema ef leigan fellur undir húsaleigulög, íbúðin var til eigin nota og þú að leigja annarstaðar eða um er að ræða heimagistingu undir fjárhæðarmörkum.

Lesa meira

Söluhagnaður

Söluhagnaður af eignum einstaklinga sem ekki eru nýttar í atvinnurekstri getur bæði myndað skattskyldar tekjur og verið skattfrjáls. Fer það eftir tegundum eigna og eignarhaldstíma auk annarra skilyrða.

Lesa meira

Arður

Ef þú átt hlut í félagi og færð arð, þá telst hann til skattskyldra fjármagnstekna, svo framarlega sem um er að ræða heimila arðsúthlutun. Arður getur einnig verið önnur úthlutun verðmæta úr félaginu, sem telst sem tekjur af eignarhlut. Arður telst til tekna á því ári sem ákvörðun um úthlutun er tekin, ekki endilega þegar hann er greiddur út.

Lesa meira

Vaxtatekjur

Til skattskyldra fjármagnstekna einstaklinga teljast m.a. vaxtatekjur. Af vaxtatekjum er dregin staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts en endanleg álagning fer fram við álagningu opinberra gjalda.

Lesa meira

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum