Skattþrep í staðgreiðslu 2021

Staðgreiðsluskattur sem dregin er af launum er í þrem skattþrepum. Einstaklingar með greiðslur frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að gera ráðstafanir til þess að rétt hlutfall skatts sé dregið af launum þeirra og forðast þannig skattskuld við álagningu.

Information in English

Staðgreiðsluhlutfallið er eftirfarandi:

Skattþrep Tekjubil Hlutfall
Skattþrep 1 Af tekjum 0 – 349.018 kr. 31,45%
Skattþrep 2 Af tekjum 349.019 - 979.847 kr. 37,95%
Skattþrep 3 Af tekjum yfir 979.847 kr. 46,25%

Ábyrgð launamanna

Hver og einn launamaður ber ábyrgð á að gefa sínum launagreiðanda réttar upplýsingar til að tryggja að rétt staðgreiðsluhlutfall sé dregið af laununum og að nýting persónuafsláttar sé með réttum hætti.

Fari mánaðarlaun yfir 349.018 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum í næsta skattþrepi fyrir ofan. Fari mánaðarlaun yfir 979.847 kr. þarf að reikna staðgreiðslu af þeim hluta sem fer yfir það mark í þrepi þrjú eða 46,25%.

Tökum dæmi:

Dæmi 1: Ellilífeyrir

Dæmi 2: Sumarvinna

Dæmi 3: Sérfræðingur með há laun

Dæmi 4: Fæðingarorlof

Dæmi 5: Tímabundin dvöl á Íslandi


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum