2018

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 66/2018

11.4.2018

Úrskurður nr. 66/2018

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2018, miðvikudaginn 11. apríl, er tekið fyrir mál nr. 181/2017; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. […] og X slf., kt. […],  verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Þórarinn Egill Þórarinsson og Bjarnveig Eiríksdóttir. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :


I.

Með bréfi, dags. 19. desember 2017, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. […], og X slf., kt. […], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstrarársins 2016.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A, sem stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og prókúruhafa X slf., kt. […], og félagsmanni með ótakmarkaða ábyrgð, er gefið að sök eftirfarandi:


Vanræksla á skilum á virðisaukaskattsskýrslum. Vanframtalin skattskyld velta og útskattur. Mögulegur innskattur.

A er gefið að sök að hafa, að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna virðisaukaskattsskyldrar starfsemi X slf. til ríkisskattstjóra vegna allra uppgjörstímabila rekstrarársins 2016 og vanframtelja með því skattskylda veltu og virðisaukaskatt. Samkvæmt niðurstöðu skattrannsóknarstjóra ríkisins nemur vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 35.782.767 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 8.587.865, að teknu tilliti til kreditreiknings uppgjörstímabilið nóvember–desember rekstrarárið 2016. Mögulegur innskattur nemur samtals kr. 4.266.496.

Sundurliðast vanframtalin skattskyld velta og virðisaukaskattur svo sem hér greinir:

Rekstrarár Uppgjörs-tímabil Vanframtalin skattskyld velta Vanframtalinn útskattur Mögulegur innskattur
2016 jan. - feb. 232.200 55.728 11.330
2016 mars - apríl 2.500.000 600.000 418.396
2016 maí - júní 10.187.000 2.444.880 1.211.556
2016 júlí - ágúst 6.450.000 1.548.000 1.139.809
2016 sept. - okt. 16.669.881 4.000.772 1.270.813
2016 nóv. - des. -256.314 -61.515 214.592
Samtals kr.   35.782.767 8.587.865 4.266.496

Sú háttsemi A sem hér hefur verið lýst brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. sbr. aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr 11. gr., 1. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum. Þá varðar brot þessi X slf., sekt skv. 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Við væntanlega endurákvörðun á virðisaukaskatti vegna uppræddra uppgjörstímabila vegna rekstrarársins 2016 mun skattaðila að líkum verða gert að sæta álagi á vangreiddan virðisaukaskatt samkvæmt 27. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, er komi til frádráttar við ákvörðun sektarfjárhæðar.

Þess er krafist að X slf. og A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 19. desember 2017, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með bréfum yfirskattanefndar, dags. 20. desember 2017, var gjaldendum veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins eða tilkynna sérstaklega ef þeir vildu ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál þeirra og yrði málið þá endursent skattrannsóknarstjóra ríkisins sem tæki ákvörðun um hvort því yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sbr. 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Engar athugasemdir hafa borist frá gjaldendum.

III.

1. Með bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 19. desember 2017, er gerð sú krafa að gjaldanda, A, verði gerð sekt samkvæmt þargreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, þar sem hann hafi sem fyrirsvarsmaður X slf. vanrækt að standa skil á virðisaukaskatti félagsins þau uppgjörstímabil árið 2016 sem greinir í bréfinu. Þá er þess krafist að X slf. verði gerð sekt af sömu ástæðum. Gjaldendur hafa átt þess kost að koma að vörnum fyrir yfirskattanefnd í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins, en engar athugasemdir hafa borist. Þar sem gjaldendur hafa ekki gert athugasemdir við meðferð máls þessa fyrir yfirskattanefnd verður að líta svo á að þeir mæli því ekki í gegn að það sæti sektarmeðferð fyrir nefndinni.

2. Sektarkrafa skattrannsóknarstjóra ríkisins í máli þessu er byggð á niðurstöðum rannsóknar embættisins á bókhaldi og skattskilum X slf. vegna rekstrarársins 2016, sbr. skýrslu um rannsóknina, dags. 9. ágúst 2017. Rannsókn þessi hófst formlega hinn 11. maí 2017 og beindist aðallega að virðisaukaskattsskilum félagsins á rannsóknartímabilinu. Vegna rannsóknarinnar var tekin skýrsla af gjaldanda, A, hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins hinn 6. júní 2017. Var rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins byggð á upplýsingum sem fram komu við þessa skýrslutöku, en einnig var byggt á bókhaldi X slf., sölureikningum útgefnum í nafni X slf., bankareikningi félagsins og upplýsingum úr upplýsingakerfum skattyfirvalda. Með bréfi, dags. 22. júní 2017, sendi skattrannsóknarstjóri gjaldanda skýrslu um rannsóknina, sem dagsett var sama dag, og gaf honum kost á að tjá sig um efni hennar áður en ákvörðun yrði tekin um framhald málsins. Athugasemdir voru ekki gerðar af hálfu gjaldanda. Í framhaldi af þessu tók skattrannsóknarstjóri ríkisins saman nýja skýrslu um rannsóknina, dags. 9. ágúst 2017, sem var efnislega samhljóða hinni fyrri að viðbættum kafla um lok rannsóknarinnar.

3. Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 9. ágúst 2017, kemur fram að gjaldandi, A, var stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi X slf. og eigandi og félagsmaður með ótakmarkaða ábyrgð þann tíma sem málið varðar. Að því er varðar skattskilagögn kemur fram að virðisaukaskattsskýrslum X slf. vegna allra uppgjörstímabila rekstrarársins 2016 hafi ekki verið skilað. Er í þessu sambandi rakinn sá framburður gjaldanda við skýrslutöku 6. júní 2017 að „skuldarugl“, sem leitt hefði til þunglyndis og kvíða, og hjónaskilnaður, hefði verið ástæða þess að virðisaukaskattsskýrslum var ekki skilað. Sagðist gjaldandi bara hafa gefist upp. Í skýrslunni er rakið að fyrir liggi að gefnir hafi verið út 36 sölureikningar í nafni X slf. á rannsóknartímabilinu, en um sé að ræða handskrifaða sölureikninga úr tveimur númeraröðum og að tvo sölureikninga vanti til að númeraraðir séu samfelldar. Við skýrslutöku af gjaldanda sagði gjaldandi að hann teldi að þeir reikningar sem vanti séu ógildir. Er tekið fram í skýrslunni að skattrannsóknarstjóri ríkisins telji ekki forsendur til að leggja mat á áætlaðan undandrátt vegna vöntunar sölureikninga.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins er gerð grein fyrir rannsókn á skattskyldri veltu og útskatti X slf. Við skýrslutöku 6. júní 2017 voru útgefnir sölureikningar X slf. rekstrarárið 2016 lagðir fyrir gjaldanda og staðfesti gjaldandi að þeir væru vegna virðisaukaskattsskyldrar starfsemi X slf. og að þeir hefðu fengist greiddir að fullu. Er rakið í skýrslunni að samkvæmt þessu hafi vanframtalin skattskyld velta X slf. numið 35.782.767 kr. árið 2016 (útskattur 8.587.865 kr.).

Í kafla um rannsókn á innskatti X slf. er greint frá því að samkvæmt bókhaldi félagsins sé innskattur þess 4.266.496 kr. árið 2016. Við skýrslutöku af gjaldanda 6. júní 2017 kom fram af hálfu gjaldanda að bókhald X slf. gæfi rétta mynd af innskatti félagsins. Er tekið fram í skýrslunni að skattrannsóknarstjóri geri ekki athugasemdir við innskatt þann sem færður sé í bókhaldi X slf.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 9. ágúst 2017, voru helstu niðurstöður rannsóknarinnar dregnar saman með svofelldum hætti:

„Niðurstöður rannsóknar á bókhaldi og virðisaukaskattsskilum skattaðila vegna rekstrarársins 2016 eru:

·    Virðisaukaskattsskýrslum fyrir öll uppgjörstímabil rekstrarársins 2016 hefur ekki verið skilað.

·    Bókhald var fært eftir að rannsókn hófst.

·    Einn sölureikningur er tvífærður í bókhaldi skattaðila.

·    Fjóra sölureikninga, sem gefnir voru út í nafni skattaðila, vantar meðal bókhaldsgagna og þeir eru ekki færðir í bókhald skattaðila.

·    Skattskyld velta og útskattur eru vanframtalin.

·    Fyrirliggjandi eru gögn um mögulegan innskatt.“

Þá gerði skattrannsóknarstjóri ríkisins tölulega grein fyrir niðurstöðum rannsóknarinnar í töflu í niðurlagi skýrslu sinnar. Þar kom fram að skattskyld velta X slf. væri vantalin um 35.782.767 kr. og útskattur um 8.587.865 kr. rekstrarárið 2016, en vantalinn mögulegur innskattur næmi 4.266.496 kr. sama ár.

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins var mál X slf. sent ríkisskattstjóra til meðferðar, sbr. 5. mgr. 39. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. bréf skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 19. desember 2017. Í greinargerð skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 19. desember 2017, kemur fram að endurákvörðunarþætti málsins sé ekki lokið.

4. Gjaldandi hefur sem fyrr segir ekki gert athugasemdir í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins og við skýrslutöku, sem fram fór hjá skattrannsóknarstjóra vegna rannsóknar málsins, kom fram viðurkenning gjaldanda á því að hann hefði ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum og innheimtum virðisaukaskatti X slf. árið 2016. Í máli því, sem hér er til meðferðar, er um að tefla kröfugerð um ákvörðun sektar á hendur gjaldendum samkvæmt þar tilgreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sem gera ráð fyrir því að sektarákvörðun sé bundin þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin. Verður því að taka afstöðu til þess hvort skattrannsóknarstjóri ríkisins hafi með skattrannsókn sinni sýnt fram á hverju skattfjárhæð, sem undan var dregin, hafi að minnsta kosti numið. Allan vafa í því sambandi verður að meta gjaldendum í hag, sbr. grundvallarreglu 108. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála.

Eins og rakið er að framan eru tölulegar niðurstöður samkvæmt rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á skattskilum X slf. vegna ársins 2016 byggðar á útgefnum sölureikningum félagsins og bókhaldi þess. Á þessum grundvelli er í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins gerð grein fyrir meintri vantalinni skattskyldri veltu að fjárhæð 35.782.767 kr. rekstrarárið 2016. Við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins staðfesti gjaldandi, A, að útgefnir sölureikningar X slf. hefðu allir fengist greiddir að undanskildum þeim sem hefðu verið ógildir. Samkvæmt þessu þykir ekkert komið fram sem gefur tilefni til annars en að miða við þær fjárhæðir innheimts virðisaukaskatts X slf. sem gögn málsins bera með sér.

Af hálfu gjaldanda hefur ekkert komið fram um frekari tilefni til frádráttar innskatts en reiknað er með í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Verður því byggt á niðurstöðum rannsóknarskýrslu um þann þátt málsins.

Samkvæmt framansögðu telst hafa verið leitt í ljós með rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins að skil voru ekki gerð á virðisaukaskattsskýrslum og virðisaukaskatti X slf. í samræmi við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988 öll uppgjörstímabil ársins 2016 þrátt fyrir skattskylda veltu í rekstri félagsins samkvæmt því sem rakið er að framan.

Gjaldandi, A, var eigandi og félagsmaður X slf. og skráður stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins allan þann tíma sem mál þetta varðar. Við skýrslutöku af gjaldanda hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins hinn 6. júní 2017 staðfesti gjaldandi að hann hefði séð um daglegan rekstur og fjármál X slf. á rannsóknartímabilinu. Samkvæmt þessu þykir liggja fyrir að gjaldandi hafi sem fyrirsvarsmaður X slf. borið ábyrgð á að skil væru gerð á virðisaukaskattsskýrslum félagsins og virðisaukaskatti í samræmi við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið og að öðru leyti með stoð í gögnum málsins þykir bera að fallast á ályktun skattrannsóknarstjóra ríkisins um að gjaldandi hafi með saknæmum hætti vanrækt þessar skyldur sínar umrædd uppgjörstímabil árið 2016, en virðisaukaskattur sem ekki var greiddur á lögmæltum tíma nam 4.321.369 kr. Af þessum sökum ber að ákvarða gjaldanda sekt samkvæmt 6. mgr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.

Eins og lög nr. 50/1988 hljóða eftir breytingar, sem á þeim voru gerðar með lögum nr. 42/1995, skal sekt aldrei vera lægri en sem nemur tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin eða vanrækt var greiðsla á, þó að teknu tilliti til álags. Samkvæmt þessu, málsatvikum að öðru leyti og að teknu tilliti til álags samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988, þykir sekt gjaldanda, A, hæfilega ákveðin 8.300.000 kr. til ríkissjóðs.

Að virtum dómi Hæstaréttar 21. júní 1991 (H 1991:1236) og með vísan til 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, þykir rétt að gera X slf. að greiða greinda sekt in solidum með A.

Úrskurðarorð:

Gjaldendur, A og X slf., greiði in solidum sekt að fjárhæð 8.300.000 kr. til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum