Stjórnmálasamtök

Stjórnmálasamtök sem starfa skv. lögum nr. 162/2006 eru skráð í stjórnmálasamtakaskrá Skattsins.

Skráning stjórnmálasamtaka í stjórnmálasamtakaskrá er valkvæð. Skilyrði fyrir skráningu er að tilgangur samtaka sé að bjóða fram í kosningum til Alþingis eða sveitarstjórnar, samþykktir séu í samræmi við 2. gr.h og að önnur tilskilin gögn fylgi umsókn, sbr. 2. gr. g.

Athygli er vakin á að þau samtök sem þegar eru skráð í fyrirtækjaskrá geta að uppfylltum skilyrðum laganna farið fram á að samtökin verði skráð sem stjórnmálasamtök í stjórnmálasamtakaskrá. Skulu samtökin þá skila inn nýjum samþykktum, tilkynningu um stjórn, framkvæmdastjórn og aðra þá sem geta skuldbundið félagið ásamt yfirliti yfir flokkseiningar og hlutverk þeirra.

Tilkynning 17.12 um breytingu félagasamtaka í stjórnmálasamtök

Sýnishorn af samþykktum fyrir stjórnmálasamtök 

Skráning

Skila þarf inn stofngögnum til stjórnmálasamtakaskrár og greiða skráningargjald skv. gjaldskrá.

Afgreiðslutími umsóknar um skráningu er almennt um tíu til fjórtán virkir dagar frá því að gögn eru lögð inn til stjórnmálasamtakaskrár séu þau fullnægjandi og greiðsla eða greiðslukvittun fylgi gögnunum. Hægt er að senda skannað eintak af stofngögnum á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is. Ekki er nauðsynlegt að skila inn frumritum af stofngögnum.

Skylt er að skrá raunverulega eigendur stjórnmálasamtaka og skal tilkynning um þá fylgja stofngögnum félagsins.

Í þeim tilvikum þar sem ekki er hægt að skrá raunverulegan eiganda lögaðila á grundvelli eignarhalds skal sá einstaklingur, einn eða fleiri, sem stjórnar starfsemi lögaðilans teljast raunverulegur eigandi. Það má skrá stjórn í heild, að hluta eða framkvæmdastjóra. Það er undir samtökunum komið að meta hvaða einstaklingur það er, einn eða fleiri sem í raun stjórnar starfsemi samtakanna. Þegar aðili er skráður raunverulegur eigandi á grundvelli stjórnunar þýðir það ekki að aðilinn sé „raunverulegur eigandi“ í samræmi við almenna málvenju. Samtökin verða ekki talin hans eign í skilningi eignarréttar og skráningunni fylgir engin skattaleg ábyrgð eða skylda. Skráning raunverulegra eigenda felur ekki í sér aukna ábyrgð á viðkomandi einstaklinga umfram þá ábyrgð sem þegar fylgir því að starfa í samtökum.

Hér má nálgast sýnishorn af nauðsynlegum stofngögnum.

Tilkynning 17.11 um stofnun stjórnmálasamtaka

Samþykktir

Tilkynning um raunverulega eigendur

  • Yfirlit yfir flokkseiningar og hlutverk þeirra (útbúið af samtökunum sjálfum)

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Sjá nánar um skráningu í stjórnmálasamtakaskrá

Sjá nánar lög um skráningu raunverulegra eigenda nr. 82/2019

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum