Staðgreiðsla 2011
Skatthlutfall í staðgreiðslu
Skatthlutfall í staðgreiðslu er
- 37,31% af tekjum 0 - 209.400 kr.
- 40,21% af tekjum 209.401 - 680.550 kr.
- 46,21% af tekjum yfir 680.550 kr.
Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1996 eða síðar, er 6% af tekjum umfram frítekjumark barna sem er kr. 100.745
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er kr. 530.466 á ári, eða kr. 44.205 á mánuði.
Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2011.
Einn mánuður | kr. | 44.205 |
Hálfur mánuður | kr. | 22.102 |
Fjórtán dagar | kr. | 20.346 |
Ein vika | kr. | 10.173 |
Ef launatímabil er annað en að ofan greinir skal ákvarða persónuafslátt þannig:
530.466 / 365 x dagafjöldi launatímabils
Sjómannaafsláttur
Sjómannaafsláttur á árinu 2011 er kr. 740 á dag.
Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð
Lífeyrisiðgjald sem halda má utan staðgreiðslu er 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að auki að færa til frádráttar allt að 4% vegna iðgjalda samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd, enda séu iðgjöld greidd reglulega til aðila sem falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Tryggingagjald er 8,65%.
Sérstök trygging (0,65%) bætist við vegna launa sjómanna á fiskiskipum.
- Almennt tryggingagjald | 4,54% |
- Atvinnutryggingagjald | 3,81% |
- Gjald í Ábyrgðasjóð launa v/gjaldþrota | 0,25% |
- Markaðsgjald | 0,05% |
Samtals til staðgreiðslu | 8,65% |
- Viðbót vegna launa sjómanna |
0,65% |
Samtals af launum sjómanna | 9,3% |