Nýting séreignarsparnaðar

Heimilt er að taka út séreignarsparnað skattfrjálst vegna kaupa á íbúð til eigin nota. Fyrirkomulag úttektar getur verið tvenns konar. Annars vegar má sækja um að greiða viðbótariðgjald mánaðarlega inn á lánið eða hins vegar taka út uppsafnaðan séreignarsparnað við kaup á fasteign.

Áður voru tvö úrræði eru í boði en nú er aðeins heimilt að sækja um fyrir kaupendur fyrstu íbúðar.


Almenn heimild til nýtingar séreignar

Heimild til að nýta séreignarsparnað skattfrjálst vegna kaupa á íbúð til eigin nota féll úr gildi í lok árs 2025 og hefur ekki verið framlengd. 

Þetta úrræði er ekki lengur í boði. 

Lesa meira

Fyrsta íbúð

Heimilt er að nýta séreignarsparnað skattfrjálst vegna kaupa eða byggingar á fyrstu íbúð. Heimild þessi skiptist annars vegar í útborgun uppsafnaðs séreignarsparnaðar og hins vegar mánaðarlega ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á íbúðalán. 

Lesa meira

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum