Endurgreiðsla VSK
Ferðamenn búsettir erlendis geta fengið hluta virðisaukaskatts af vörum endurgreiddan.
Lágmarks kaupverð vöru með virðisaukaskatti skal nema minnst 12.000 kr. Heimilt er að endurgreiða virðisaukaskatt af vörum á einum og sama vörureikningi sé kaupverð þeirra samtals 12.000 kr. eða meira ásamt virðisaukaskatti, þó einn eða fleiri munir nái ekki tilskilinni lágmarksfjárhæð.
Framkvæmd endurgreiðslunnar er ekki í höndum Skattsins.
Nánari upplýsingar um endurgreiðslu virðisaukaskatts fyrir ferðamenn (á ensku)
Ítarefni
Hvar finn ég reglurnar?
Nánari upplýsingar
Upplýsingasíða um endurgreiðslu virðisaukaskatts á vef Keflavíkurflugvallar.