Óbeinir skattar

Ákvarðandi bréf nr. 836/1998

20.1.1998

Endurgreiðsla virðisaukaskatts til opinberra aðila

20. janúar 1998
G-Ákv. 98-836

Vísað er til bréfs yðar, dags. 8. desember 1997, þar sem þér spyrjist fyrir um hvort M fái endurgreiddan virðisaukaskatt af þjónustu sem hann kaupir vegna eftirlits og skipulags tölvumála í skólanum. Ljósrit af samningi vegna kaupa þjónustunnar fylgdi bréfinu.

Til svars erindinu skal tekið fram að samkvæmt 5. tölul. 12. gr. reglugerðar nr. 248/1990 skal endurgreiða sveitarfélögum og ríkisstofnunum virðisaukaskatt sem þau greiða við kaup á þjónustu tæknifræðinga, arkitekta, lögfræðinga, löggiltra endur-skoðenda og annarra sérfræðinga er almennt þjóna atvinnulífinu og lokið hafa háskólanámi eða sambærilegu langskólanámi eða starfa sannanlega á sviði fyrr-greindra aðila og veita sambærilega þjónustu.

Samningur sá er hér um ræðir felur í sér fastan aðgang að sérfræðingi í hugbúnaðar-málum sem jafnframt sinnir helstu þjónustu við notendur hugbúnaðar skólans. Að mati ríkisskattstjóra er hér um að ræða sérfræðiþjónustu er fellur undir framangreint ákvæði í 5. tölul. 12. gr. reglugerðar nr. 248/1990.

Ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum