Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2016

30.6.2016

Álagningu opinberra gjalda á árinu 2016, sem og ákvörðun vaxta- og barnabóta, er lokið vegna þeirra einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra; www.rsk.is og www.skattur.is

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum fyrir hvert sveitarfélag dagana 30. júní til 14. júlí 2016 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur miðvikudaginn 31. ágúst 2016.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. ofangreindra laga.

Reykjavík 30. júní 2016

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum