Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2020

29.5.2020

Álagningu opinberra gjalda á árinu 2020 er lokið á þá einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra; www.rsk.is og www.skattur.is.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 31. ágúst 2020.

Með vísan til ákvæðis til bráðabirgða LXVI með lögum nr. 37/2020 verður álagningarskrá einstaklinga ekki lögð fram á árinu 2020. Framlagning skattskrár í janúar 2021 vegna álagningar á tekjur einstaklinga á árinu 2019 verður auglýst síðar.

Auglýsing þessi er birt, skv. 98. gr. ofangreindra laga með síðari breytingum.

Reykjavík 29. maí 2020

Snorri Olsen
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum