Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2021

31.5.2021

Álagningu opinberra gjalda á árinu 2021 er lokið á þá einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins; www.skattur.is.

Kærufrestur vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, rennur út þriðjudaginn 31. ágúst 2021.

Álagningarskrá vegna álagningar 2021 á einstaklinga verður lögð fram dagana 17. ágúst til 31. ágúst 2021 að báðum dögum meðtöldum.

Auglýsing þessi er birt, skv. 98. gr. ofangreindra laga.

Reykjavík, 31. maí 2021.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum