Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2023

31.5.2023

Álagningu opinberra gjalda á árinu 2023 er lokið á þá einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins; www.skattur.is.

Kærufrestur vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, rennur út fimmtudaginn 31. ágúst 2023.

Álagningarskrá vegna álagningar 2023 á einstaklinga verður lögð fram dagana 17. ágúst til 31. ágúst 2023 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík að Katrínartúni 6.

Auglýsing þessi er birt, skv. 98. gr. ofangreindra laga.


Reykjavík, 31. maí 2023.


Snorri Olsen
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum