Auglýsingar
Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2024
Álagningu opinberra gjalda á
árinu 2024 er lokið á þá einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla
laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins; www.skattur.is.
Kærufrestur vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, rennur út mánudaginn 2. september 2024.
Álagningarskrá vegna álagningar 2024 á einstaklinga verður lögð fram dagana 19. ágúst til 2. september 2024 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík að Katrínartúni 6.
Auglýsing þessi er birt, skv. 98. gr. ofangreindra laga.
Reykjavík, 31. maí 2024.
Snorri Olsen
ríkisskattstjóri