Auglýsingar
Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2026
Álagningu opinberra gjalda á árinu 2026 er lokið á þá einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins; www.skattur.is.
Kærufrestur vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, rennur út mánudaginn 31. ágúst 2026.
Álagningarskrá vegna álagningar 2026 á einstaklinga verður lögð fram dagana 17. ágúst til 31. ágúst 2026 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík að Katrínartúni 6.
Auglýsing þessi er birt, skv. 98. gr. ofangreindra laga.
Reykjavík, 29. maí 2026.
Snorri Olsen
ríkisskattstjóri
