Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2017

30.10.2017

Álagningu tekjuskatts 2017 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2016 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á rsk.is og skattur.is.

Álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 30. október til 13. nóvember 2017 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 29. desember 2017.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.

Reykjavík, 30. október 2017

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum