Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2018

28.9.2018

Álagningu tekjuskatts 2018 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2017 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á rsk.is og skattur.is.

Álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 28. september til 12. október 2018 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 28. desember 2018.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.

 

Reykjavík, 28. september 2018

Ingvar J Rögnvaldsson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum