Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2019

27.9.2019

Álagningu tekjuskatts 2019 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2018 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á rsk.is og skattur.is.

Álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 27. september til 11. október 2019 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 27. desember 2019.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.

Reykjavík, 27. september 2019

Snorri Olsen
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum