Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2020
Álagningu tekjuskatts 2020 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2019 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið.
Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins á www.skattur.is.
Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 30. nóvember 2020.
Með vísan til ákvæðis til bráðabirgða LXVI með lögum nr. 37/2020 verður álagningarskrá lögaðila ekki lögð fram á árinu 2020. Framlagning skattskrár á árinu 2021 vegna álagningar á tekjur lögaðila á árinu 2019 verður auglýst síðar.
Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.
Reykjavík, 30. október 2020
Snorri Olsen
ríkisskattstjóri