Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2022

31.10.2022

Álagningu tekjuskatts 2022 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2021 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins á www.skattur.is.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur miðvikudaginn 30. nóvember 2022.

Álagningarskrá vegna álagningar 2022 á lögaðila verður lögð fram dagana 16. nóvember til 30. nóvember 2022 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík í Tollhúsinu Tryggvagötu 19.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.

Reykjavík, 31. október 2022

Snorri Olsen
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum