Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila á árinu 2024

31.10.2024

Álagningu tekjuskatts 2024 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2023 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins á www.skattur.is.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 2. desember 2024.

Álagningarskrá vegna álagningar 2024 á lögaðila verður lögð fram dagana 18. nóvember til 2. desember 2024 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík í Katrínartúni 6.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.

Reykjavík, 31. október 2024

Snorri Olsen
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum