Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila á árinu 2025
Álagningu tekjuskatts 2025 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2024 skv. VIII.-XIV. kafla sömu laga, er lokið.
Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins á www.skattur.is.
Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 1. desember 2025.
Álagningarskrá vegna álagningar 2025 á lögaðila verður lögð fram dagana 17. nóvember til 1. desember 2025 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík í Katrínartúni 6.
Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.
Reykjavík, 31. október 2025
Snorri Olsen
ríkisskattstjóri
