Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila á árinu 2026

30.10.2026

Álagningu tekjuskatts 2026 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2025 skv. VIII.-XIV. kafla sömu laga, er lokið.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins á www.skattur.is.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 30. nóvember 2026.

Álagningarskrá vegna álagningar 2026 á lögaðila verður lögð fram dagana 16. nóvember til 30. nóvember 2026 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík í Katrínartúni 6.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.

Reykjavík, 30. október 2026

Snorri Olsen

ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum