Auglýsingar
Auglýsing ríkisskattstjóra um framlagningu álagningarskrár einstaklinga 2021
Auglýsing ríkisskattstjóra um framlagningu álagningarskrár 2021 vegna álagningar opinberra gjalda á tekjur einstaklinga tekjuárið 2020, sbr. auglýsingu ríkisskattstjóra um lok álagningar á einstaklinga þann 31. maí 2021.
Álagningarskrá vegna álagningar 2021 á einstaklinga verður lögð fram dagana 17. ágúst til 31. ágúst 2021 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík í Tollhúsinu Tryggvagötu 19.
Auglýsing þessi er birt, skv. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
Reykjavík, 11. ágúst 2021.
F. h. ríkisskattstjóra,
Helga Valborg Steinarsdóttir.