Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum

1.1.2023

(nr. 1449/2022 í Stjórnartíðindum)
um skil á upplýsingum á árinu 2023, vegna framtalsgerðar o.fl., samkvæmt 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.


7. desember 2022 nr. 2023 - 1


Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2022 skuli skilað eigi síðar en 20. janúar 2023. Upplýsingum þessum skal skilað á rafrænu formi og samkvæmt lýsingum á vef Skattsins, á slóðinni www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus.

  1. Launa- og verktakaupplýsingar o.fl. (RSK 2.01).
    Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur (þ.m.t. umsýslu- eða umboðsgreiðslur, s.s. í ferðaþjónustu o.fl.).
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr launakerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi Skattsins.
      • Innlestur skráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi Skattsins.
      • Sjá nánar um Gagnaskil.
      • Sjá nánar eyðublað RSK 2.01 og orðsendingar til launagreiðanda nr. 3/2022 og 4/2022.
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar. Skal skilað á rafrænu formi.
  2. Bifreiðahlunnindaupplýsingar (RSK 2.035).
    Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr launakerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi Skattsins.
      • Innlestur skráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi Skattsins.
      • Sjá nánar um Gagnaskil.
      • Sjá nánar eyðublað RSK 2.035 og orðsendingar til launagreiðanda nr. 3/2022 og 4/2022.
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar. Skal skilað á rafrænu formi.
  3. Hlutafjárupplýsingar (RSK 2.045).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Sundurliða skal upplýsingarnar á kennitölur og nöfn allra skattaðila (rétthafa) eða á erlent auðkennisnúmer (TIN nr.) ef um erlenda rétthafa er að ræða án íslenskrar kennitölu.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr fjárhagskerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi Skattsins.
      • Innlestur skráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi Skattsins.
      • Sjá nánar um Gagnaskil.
      • Sjá nánar eyðublað RSK 2.045 og RSK 2.04 og orðsendingu til launagreiðanda nr. 3/2022.
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar. Skal skilað á rafrænu formi.
  4. Stofnsjóðsupplýsingar (RSK 2.065).
    Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Skila skal m.a. upplýsingum um eign eigenda í félaginu í árslok og úttektir af höfuðstól á árinu. Sundurliða skal upplýsingarnar á kennitölur og nöfn allra skattaðila (rétthafa) eða á erlent auðkennisnúmer (TIN nr.) ef um erlenda rétthafa er að ræða án íslenskrar kennitölu.
    Skilaform:
    • Rafrænt
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar. Skal skilað á rafrænu formi.
  5. Launaframtal (RSK 1.04, RSK 1.06 eða RSK 4.05).
    Allir sem greiða laun eiga að skila sundurliðun á launagreiðslum (stofn til tryggingagjalds) rafrænt sem hluta af almennum framtalsskilum. Hjá einstaklingum með rekstur er launaframtalið hluti af samræmingarblaði RSK 4.05, hjá fyrirtækjum í atvinnurekstri er það hluti af skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 og hjá félögum sem undanþegin eru tekjuskatti er það hluti af skattframtali óskattskyldra lögaðila RSK 1.06 sem hægt er að skila á þjónustusíðu á skattur.is.
    Skilaform:
    • Rafrænt, á þjónustusíðu á skattur.is, sbr. ofanritað.
    • Sjá nánar orðsendingu til launagreiðanda nr. 3/2022.
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • Launaframtali er skilað rafrænt og fylgir það skilafresti vegna framtala, þ.e. síðasti skiladagur er 14. mars hjá einstaklingum og 31. maí hjá öllum lögaðilum.
  6. Viðskipti með hlutabréf/afleiður.
    Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf/afleiður. Sundurliða skal upplýsingar um hver viðskipti á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila.
    Skilaform:
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar.
  7. Innstæður o.fl.
    Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar eða hafa milligöngu um ávöxtun og/eða vörslu fjármuna. Sama á við um þá sem taka við eða hafa milligöngu um hverskonar ráðstöfun fjármuna, s.s. vegna söfnunartrygginga og rafeyriskorta. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um alla bankareikninga og rafeyriskort, þ.e. innstæður og heildarveltu ársins ásamt vaxtatekjum, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið til erlendra eða innlendra aðila og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu reikninganna í árslok. Þá skal upplýsa um alla vexti af kröfum greiddum erlendum aðilum, sbr. 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 og afdrátt staðgreiðslu og stöðu þessara krafna í árslok.
    Skilaform:
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar.
  8. Viðskipti með verðbréf, önnur en hlutabréf og afleiður, sbr. 6. tölul. að framan.
    Skila skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um öll verðbréf, s.s. kröfur og hlutdeildarskírteini. Tilgreina skal vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið erlendum eða innlendum aðilum og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu í árslok.
    Flokka skal fjármálagerninga í almenna og sérstaka (kúlubréf, s.s. spariskírteini). Vaxtatekjur af sérstökum verðbréfum, sem seld voru eða innleyst á árinu 2022, þarf að sundurliða eftir því sem þær hafa áunnist.
    Skilaform:
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar.
  9. Lánaupplýsingar (bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán).
    Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur, greiðslukortafyrirtæki o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga og lögaðila. Jafnframt skal veita upplýsingar um kröfur sem hafa verið afskrifaðar að hluta eða öllu leyti.
    Skilaform:
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar.
  10. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit (RSK 2.025).
    Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:
    • Rafrænt, Hægt er að skila þessu eyðublaði með skattframtali í rafrænum framtalsskilum.
    • Sjá nánar eyðublað RSK 2.025 (pdf).
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • Sami skiladagur og á skattframtali, ef skilað er með því.
  11. Greiðsluupplýsingar – leiga eða afnot (RSK 2.02).
    Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan. Sama á við um þá sem hafa í atvinnuskyni milligöngu um útleigu, bæði til skamms og langs tíma, s.s. leigumiðlarar, bókunarþjónustufyrirtæki og umboðsmenn slíkra aðila.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Greiðsluupplýsingar fylgja skattframtali á vefnum og er skilað með því sé það notað.
      • Einnig má senda greiðsluupplýsingar sem launaupplýsingar (sjá hér að ofan). Þá er notaður reitur 65 í launaupplýsingum. Launaupplýsingum er hægt að skila; beint úr launakerfum, með innlestri á textaskrá í Gagnaskilakerfinu (sjá Gagnaskil) eða með skráningu í sama kerfi.
      • Sjá nánar eyðublað RSK 2.02 (pdf).
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar ef skilað er á rafrænu formi sem launaupplýsingum.
    • Sami skiladagur og skattframtal ef skilað er með því.
  12. Hlutabréfakaup skv. staðfestri kaupréttaráætlun (RSK 2.085).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög og samlagshlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003. Sama á við um söluréttarsamninga.
    Skilaform:
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar.
  13. Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum (listi yfir þátttakendur).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög og einkahlutafélög sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að þau uppfylli skilyrði fyrir því að kaup einstaklinga á hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt rétt til skattfrádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar.
  14. Fjármagnstekjur.
    Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti (þ.m.t. verðbætur og dráttarvexti) skulu skila upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur sundurliðað á móttakendur og staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða innheimtuaðila, t.d. lögmannsstofur, óháð því hvort veitt hefur verið undanþága frá afdrætti staðgreiðslu við innheimtu á vaxtatekjum einstaklinga. Þessum upplýsingum er eingöngu hægt að skila rafrænt (sjá www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/gagnaskil-vefthjonusta/).
    Skilaform:
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar.
  15. Mótteknar gjafir og framlög til félaga sem skráð eru á almannaheillaskrá Skattsins.
    Skilaskyldir eru allir þeir lögaðilar sem samþykktir hafa verið til skráningar á almannaheillaskrá Skattsins og skal skila upplýsingum um fjárhæðir móttekinna gjafa/framlaga, sundurliðað eftir gefendum ásamt kennitölum. Skil á þessum upplýsingum er forsenda þess að viðurkenndur verði frádráttur framteljenda frá tekjum sínum vegna gjafa/framlaga, sbr. 7. tölul. A-liðar 30. gr., sbr. og 3. málsl. 2. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:
    Tengiliður Skattsins:
    Skiladagur:
    • 20. janúar.

Ef skilað er röngum eða gölluðum upplýsingum, eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, þarf skilaskyldur aðili, eftir atvikum, að greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.

Allar fyrirspurnir vegna gagnaskila má senda á netfangið gagnaskil@skatturinn.is.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 7. desember 2022
Snorri Olsen
ríkisskattstjóri

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum